Haust fréttabréf ´16 – ´17

Framkvæmdastjórn þessa árs setti sér það markmið að  upplýsa samstarfsaðila um störf samtakanna. Fréttabréfin eru liður í því. Í lok sumars sendi Alþjóðanefnd LÍS frá sér fyrsta fréttabréfið en í þessu bréfi er ætlunin að ná utan um alla starfsemi samtakanna. Margt hefur gengið á undanfarið og því segjum við frá í stuttu máli. Ykkur er að sjálfsögðu velkomið að hafa samband ef þið hafið spurningar eða ábendingar um ákveðin atriði. Sömuleiðis ef þið hafið eitthvað við þetta fréttabréf að bæta þá hvetjum við ykkur til að hafa samband við fulltrúa í framkvæmdastjórn eða á lis@haskolanemar.is.

 

Staðsetning og dagsetning á Landsþingi LÍS 2017 ákveðin

Þann 17. - 19. mars verður Landsþing LÍS 2017 haldið á Akureyri. Að þessu sinni mun FSHA taka við boltanum af SFHR og sjá um skipulagningu Landsþingsins. Undirbúningur er kominn af stað og verður yfirskrift þingsins „Samfélagið: Sjálfbærni og styrkur“. Þetta þema var ákveðið í samstarfi við FSHA en Háskólinn á Akureyri er með yfirlýsta stefnu um að verða kolefnisjafnaður innan nokkurra ára.

„Við erum mjög spennt fyrir komandi verkefni og getum ekki beðið eftir að fá ykkur norður“ - Logi Úlfarsson, varaformaður FSHA.

Aldís Mjöll Geirsdóttir, Helga Lind Mar og Þórður Jóhannsson á BM 69 í Bergen í síðastliðinn.

FYRRUM ALÞJÓÐAFORSETI LÍS TEKUR SÆTI Í FRAMKVÆMDASTJÓRN ESU

Nýlega losnaði sæti í framkvæmdastjórn European students’ Union (ESU). Fjöldi umsókna bárust í stöðuna og það gleður okkur að tilkynna að Helga Lind Mar, fyrrum alþjóðaforseti LÍS, var kosin. Helga Lind sat sem alþjóðaforseti LÍS á síðasta ári og hefur sótt ráðstefnur ESU fyrir okkar hönd.

ÁKALL UM BETRA MENNTAKERFI

Greinaskriftaátaki LÍS lauk í vikunni og viljum þakka öllum sem komu að því skrifa greinarnar fyrir hönd ykkar skóla. Birtingarmynd undirfjármögnunar er töluvert ólík eftir hverjum skóla og var vikilega gaman að sjá blæbrigði hvers skóla í greinunum. Greinarnar veraða allar aðgengilegar á heimasíðu LÍS (www.haskolanemar.is). Einnig viljum við hvetja ykkur ef þið hafið ekki nú þegar gert það, að skrifa undir þessa áskorun til stjórnvalda um aukið fjármagn til háskólanna á www.haskolarnir.is.

 

UMSÓKNIR Í NEFNDIR LÍS

Í september var auglýst eftir meðlimum í nefndir LÍS og voru undirtektirnar framar vonum. Þetta er frumraun á þessu fyrirkomulagi en við í framkvæmdastjórninni erum mjög spennt fyrir komandi starfi með nýjum meðlimum. Nefndir og nefndarmeðlimi er hægt að sjá hér að neðan:

Alþjóðanefnd
Þórður Jóhannsson, alþjóðaforseti (SÍNE)
Aldís Mjöll Geirsdóttir (SHÍ)
Bryndís Pálmarsdóttir (HÍ)
Elsa María Drífu Guðlaugsdóttir (NLHÍ)
Hrefna Ósk Maríudóttir (HÍ)
Ingvar Þór Björnsson (HÍ)

Jafnréttisnefnd
Elsa María Guðlaugs Drífudóttir,
formaður (NLHÍ)
Ágústa Björg Kettler Kristjánsdóttir (HÍ)
Unnur Helgadóttir (HÍ)
Sigríður Borghildur Jónsdóttir (HÍ)
Þórður Jóhannsson (SÍNE)
Sigvaldi Sigurðarson
Gæðanefnd
Sunna Mjöll Sverrisdóttir, gæðastjóri (SHÍ)
Erna Sigurðardóttir (SFHR)
Svandís Sigurðardóttir (HÍ)
Jóhann Már Berry (NLBHÍ)

Lagabreytinganefnd
Aldís Mjöll Geirsdóttir, formaður (SHÍ)
Brynhildur Sörensen (HÍ)
Unnur Helgadóttir (HÍ)
Kristbjörg Fjóla Hrólfsdóttir (HÍ)

Viðburðanefnd
Erna Hlín (NFHB)
Maria Araceli (HÍ)

Enn er opið fyrir umsóknir í fjármálanefnd LÍS og markaðsnefnd sjá lýsingu hér hér.

GÆÐANEFND LÍS

LÍS er með fulltrúa í Ráðgjafanefnd Gæðaráðs íslenskra háskóla. Fundir nefndarinnar hafa undanförnu snúist um gerð handbókar fyrir næstu gæðaúttekt háskólanna (QEF II). Handbókin verður notuð við næsta hring úttektanna sem hefst haustið 2017. Fulltrúar og varafulltrúar LÍS í ráðgjafanefnd gæðaráðs eru David Erik Mollberg, Sunna Mjöll Sverrisdóttir og Jóhann Már Berry. Þátttaka stúdenta í úttektunum er afar mikilvæg og við viljum efla þátttöku þeirra. Því fögnum við því að hafa fengið í gegn að gefin verði út handbók stúdenta samhliða gæðahandbókinni. Gæðanefndin vinnur nú einnig náið með Rannís að verkefni sem snýr að því að koma stúdentum meira inn í ákvörðunartöku gæðamála háskólanna.

 

FAGHÁSKÓLI

LÍS átti sæti í nefnd um fagháskóla sem var skipuð af menntamálaráðráðuneytinu. Verkefni nefndarinnar var að gera skýrslu um stofnun fagháskóla á Íslandi. Niðurstaðan var kynnt þann 16. október við formlega undirskrift þeirra fjármögnunaraðila sem koma að verkefninu, en stofnaður var 150 milljóna króna þróunarsjóður. Markmið með fagháskóla er að fjölga nemendum í verk- og starfsnámi á háskólastigi í takti við þarfir atvinnulífs og samfélags, og að gera verk- og starfsnám að meira aðlaðandi valkosti fyrir ungt fólk. Lesa má meira hér. Fulltrúar LÍS í nefndinni voru David Erik Mollberg og Sunna Mjöll Sverrisdóttir. LÍS kemur til með að fá sæti í nefndinni sem kemur að því að þróa og innleiða fagháskóla í íslenskt samfélag.

 

Við undirritun hæfnirammanns

HÆFNIRAMMI Í MENNTAMÁLUM

LÍS átti sæti í nefnd sem falið var að endurskrifa og bæta íslenska  hæfnirammann í menntamálum. Ferlið tók um tvö ár og lauk þann 12. nóvember með formlegri undirskrift hagsmunaaðila. Hæfniramminn hefur tvíþættan tilgang; annars vegar að auka gegnsæi innan menntakerfis viðkomandi lands og hinsvegar að auka gagnsæi milli evrópskra menntakerfa. Upplýsingar um hæfni má t.a.m. nýta í ferilskrá, við starfsþróun og í umsókn um nám. Lesa má meira héren ramminn verður fljótlega aðgengilegur á www.haskolanemar.is.

Lea Meister formaður ESU flytur ávarp á ESC 32

MENNTUN OG HÆFNI Í EVRÓPU

Þann 30. september sendi LÍS tvo fulltrúa, Þórð Jóhannsson og Aldísi Mjöll Geirsdóttur, á European Students Convention (ESC32) í Bratislava. Þema ráðstefnunnar var “Education and Skills for the Future of Europe”. Þemað er víðtækt og hægt að taka á mörgu. Rauði þráðurinn í gegnum alla ráðstefnuna var alls kyns umfjöllun um óformlegt nám (informal/nonformal/prior-learning). Fjallað var m.a. um það hvort og hvernig meta ætti slíkt nám. Einnig var fjallað um “the rise of extremism” í Evrópu og hvert hlutverk stúdenta og menntunar í heild sinni væri í þeim efnum.

Fyrir utan fyrirlestra og vinnustofur áttu fulltrúar okkar einnig lærdómsríkar samræður við fulltrúa nágrannaþjóða okkar og fengu smörþefinn af því hvernig farið er að þar í ýmsum málum.

ESU heldur 4 ráðstefnur ár hvert. Tvær þeirra eru svokallaðar ESC og eru þær á hefðbundnu ráðstefnuformi. Hinar tvær eru BM (Board Meeting) þar sem mikilvægar ákvarðanir eru teknar með kosningu aðildafélaga, ekkert ólíkt landsþingi LÍS.

HVAÐ ER FRAMUNDAN?

Jafnréttisnefnd LÍS er að koma á fund með jafnréttisfulltrúum/-nefndum háskólanna. Þar stendur til að kynna hugmynd að sameiginlegu verkefni um gagnagrunn yfir réttindi og kjör nemenda sem eru fatlaðir og/eða með sértæka námsörðugleika. Hugmyndin byggist á verkefninu „Réttinda Ronja“ sem varð til hjá SHÍ og var unnið af nemendum þar. Fundurinn verður haldinn í byrjun nóvember og eru áhugasamir velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Elsa María Guðlaugs Drífudóttir; elsa14@lhi.is.

 

FUND OUR FUTURE

LÍS var nýverið boðið að taka þátt í herferð sem mun fara fram á heimsvísu, FoF herferðin vill vekja athygli á því að aðangur að menntun er réttur allra nemenda, sem þarf að vera fjármagnaður af hverju landi fyrir sig. Það gengur gegn réttindum nemenda að útiloka þá frá skóla vegna fjárskorts. Skipuleggjendur átaksins FoF vilja veita nemendasamtökum frá öllum löndum aðstoð til þess að breiða út kröfur nemenda í sameiningu. Við samþykkjum að sjálfsögðu að taka þátt í þessu átaki og var greinaskriftaátak LÍS okkar fyrsta skref í átakinu.Frekari upplýsingar fást á heimasíðu FoF.

 

RÁÐSTEFNUR

LÍS kemur til með senda fulltrúa á Northern-European Regional HousErasmus+ Conference. Ráðstefnan verður í Malmö þann 22. - 23. nóvember næstkomandi. Skipuleggjendur ráðstefnunnar koma til með að borga þátttökugjald fyrir einn og flugkostnað að 230 evrum. Fulltrúi LÍS á ráðstefnunni verður Hrefna Ósk Maríudóttir. Lesa má frekar um ráðstefnuna hér. Við köllum þess vegna eftir því að ræða við aðila sem hafa þekkingu á íbúðakerfinu fyrir skiptinema á Íslandi, endilega hafið samband með ábendingar við David Erik Mollberg á davidemollberg@gmail.com.

LÍS kemur einnig til með að senda fulltrúa á European Quality Assurance Forum (EQAF) sem fer fram þann 17. - 19. nóvember í Ljubljana í Slóveníu. Rannís greiðir allan ráðstefnu- og ferðakostnað fyrir fulltrúa LÍS sem verður David Erik Mollberg. Ráðstefnan er skipulögð af Slovenian Student Union en lesa má meira um ráðstefnuna hérna.

Fulltrúar LÍS á Nordic Organizational Meeting (NOM), sem haldinn verður í Helsinki 4. - 7. nóvember, verða Aldís Mjöll Geirsdóttir og Þórður Jóhannsson. NOM er samráðsvettvangur fyrir landssamtök á Norðurlöndunum og Eystrarsaltslöndunum. Hagsmunir þessara samtaka liggja oftar en ekki saman og því eru þessir fundir notaðir til að stilla saman strengi þegar kemur að stjórnarfundum en á þeim eru mikilvægar kosningar um framtíð ESU og menntamála í Evrópu. Þess má svo geta að röðin er komin að LÍS að halda NOM á næsta ári, í apríl.

LÍS mun senda fulltrúa á stjórnarfund ESU (Board Meeting, BM) sem verður haldinn í Gdansk, Póllandi 25. nóvember til 4. desember. Stjórnarfundir eru mjög mikilvægir fyrir meðlimi ESU að sækja og er þar LÍS alls ekki undanskilin. Á fundunum eru kosningar um lagabreytingar, stefnur, yfirlýsingar o.s.frv.

 

FÆRUM ÞEKKINGUNA HEIM

Ritaðar eru skýrslur eftir allar ráðstefnur og stjórnarfundi ESU sem LÍS sækir. Markmiðið með þeim er að tryggja að sú þekking og reynsla sem áunnin er á þessum viðburðum skili sér til Íslands. Skýrslurnar verða aðgengilegar aðildarfélögum um leið og þær eru tilbúnar. Skýrslurnar eru kynntar framkvæmdastjórnarmeðlimum á framkvæmdastjórnarfundum þar sem er rætt þau málefni sem eru hvað mest viðeigandi fyrir LÍS og menntamál á Ísland en þeir fundir eru opnir öllum.

Previous
Previous

Ert þú háskólanemi með áhuga á nýsköpun?

Next
Next

Ráðstefna í Bratislava: „Education and Skills for the Future of Europe“