"Mánaðarlegur" pistill forsetans - 2. febrúar 2022
Kæru lesendur,
Eins og venjan er var desembermánuðurinn mikið fjör vegna hátíðanna og það er af þeim sökum að pistill var ekki birt þá vegna þess og ég vona að þið lesendur fyrirgefið mér fyrir hvað þessi pistill kemur seint.
Þessi vetur höfum við unnið jafnt og þétt til að tryggja að raddir okkar heyrast sem víðast. Í desember var samþykkt yfirlýsing vegna Stjórnarsáttmálans ríkisstjórnar þar sem við fjölluðum um hvernig stefna ríkisstjórnar varðar okkur stúdenta. Þau sem eru áhugasöm geta nálgast yfirlýsinguna hér.
Í janúar héltum við nýársþing samtakanna þar sem mikið var rætt sýnileika og hvernig við eigum að koma okkur betur í sviðsljósið. Við fengum gullna tækifærið til þess á fundi með Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Á fundinum var fjallað um helstu málefni okkar beggja og það var öllum þátttakendum til bóta. Nánar um fundinn má lesa hér.
Gæðamál hafa einnig verið afar virk upp á síðkastið. Verið var að leita að doktorsnemum til að taka þátt í stofnanaúttekt á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og ennþá er verið að leita að áheyrnarfulltrúa til að sitja í Gæðaráði íslenskra háskóla. Meira um það finnst hér.
Að lokum ber mér að nefna að það er opið fyrir umsóknir í framkvæmdastjórn LÍS 2022-2023. Þátttaka í starfi er ómetanleg reynsla sem ég mæli eindregið með. Ef þið hafið áhuga um að sækja um megið þið gera það hér.
Þetta kjörtímabil hefur liðið hjá með alveg ótrúlegum hraða. Ég hlakka mikið til að sjá hvað er á næstunni og hvaða einstaklingar munu vera nóg djarfir til að bjóða sig fram í næstu kosningunum.
Með bestu kveðju,
Derek Terell Allen