Skráning á Landsþing LÍS 2026 - Akureyri

Landsþing LÍS 2026 verður haldið 19.-22. mars á Akureyri.

(skráningarhlekkur hér)

Á landsþingi koma saman 39 þingfulltrúar, framkvæmdastjórn, nefndarmeðlimir, frambjóðendur og fyrirlesarar auk fundarstjóra og ritara. Þingfulltrúar hafa atkvæðis-, málfrelsis- og tillögurétt á þinginu. Framkvæmdastjórn og nefndarmeðlimir hafa málfrelsis- og tillögurétt á þinginu en ekki atkvæðisrétt. 

Samkvæmt reikniformúlu með tilliti til nemendafjölda er fjöldinn hjá hverju nemendafélagi eftirfarandi:

Þingfulltrúar alls: 39
SHÍ - 13
SFHR - 7
SHA - 7
NFHB - 4
SLHÍ - 2
NLBHÍ - 2
SÍNE - 2 
SH - 2

Þingfulltrúar hafa til og með 5. mars að senda lagabreytingar, ályktanir, önnur mál eða yfirlýsingar sem þeir vilja taka fyrir á þinginu.

Við hvetjum einnig öll til þess að íhuga framboð í stjórn LÍS, en framboðsfrestur rennur út þann 5. mars. Frekari lýsingu á hlutverki og skyldum þeirra má nálgast hér í lögum LÍS. Framboð skulu berast til kjörstjórnar á netfangið kjorstjorn@studentar.is. Framboðum skulu fylgja kynningarbréf og ferilskrá frambjóðenda. 
 
Nánar um þingið:
 
Þemað í ár er áhersla stúdenta í mótun fyrstu háskólastefnu á Íslandi. Fyrir utan fasta liði eins og lagabreytingar og kosningar verða vinnustofur sem munu leggja grunninn að áherslum stúdenta í fyrirhugaðri háskólastefnu. Dagskrá verður send á fulltrúa 30 dögum fyrir þingið með fyrirvara um smávægilegar breytingar. Við hvetjum alla fulltrúa til að skrá sig fyrir 17. febrúar en þá berast fundargögn og gott er að hafa nægan tíma til þess að kynna sér þau. Frestur til þess að skrá sig á þingið rennur endanlega út 5. mars en þá rennur einnig út frestur til þess að senda inn tillögur.

 
Þingið verður haldið í Háskólanum á Akureyri en gist verður á Hótel Norðurland, herbergin eru tveggja manna.

Útbúið verður skráningarskjal þar sem hópað verður í bíla. Reiknað er með 2-4 í hvern bíl. LÍS greiðir fyrir eldsneytiskostnað og því er gott að taka eldsneyti áður en lagt er af stað og svo aftur þegar komið er heim. Eldsneyti er einungis endurgreitt ef LÍS fær senda kvittun fyrir því
 
Allur kostnaður við aukið aðgengi (t.d. aðstoðarmanneskju, hjólastólabíl, táknmálstúlk, herbergi með auknu aðgengi o.fl.) er greiddur af LÍS/Erasmus+ styrk. Alls ekki hika við að segja frá auknu aðgengi sem þarf til þess að þingfulltrúi geti tekið fullan þátt. Gott aðgengi er á fundarstað. Ekki hika við að hringja í síma 595-5122 ef spurningar varðandi aðgengi vakna. 

 
Gisting, matur, kaffi og snarl verða í boði LÍS, fyrir utan fimmtudagskvöldið. Fimmtudagur er einungis ferðadagur og er kvöldið frjálst. Vinsamlegast segið frá sérstöku mataræði eða fæðuóþoli/ofnæmi í skráningunni. 

Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna!

Þingið er samfjármagnað af Evrópusambandinu. 

Previous
Previous

Opið fyrir framboð í framkvæmdastjórn LÍS 2026-2027

Next
Next

Setjum endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna í forgang