Raddir stúdenta í Alþingiskosningum 2024
Íslenskir háskólanemar ganga til kosninga á erfiðasta tíma ársins - í prófatíð og knappri kosningabaráttu þar sem lítill tími er til stefnu til að kynna sér kosningaáherslur allra flokka.
Á tímum þar sem miklar breytingar á háskólaumhverfinu eru að eiga sér stað og heildarendurskoðun á lögum um Menntasjóð námsmanna stendur yfir er gríðarlega mikilvægt að rödd stúdenta heyrist og að verðandi ríkisstjórn hafi málefni og sjónarmið stúdenta að leiðarljósi.
Á fulltrúaráðsfundi þann 15. október síðastliðinn voru fjórar lykilspurningar um málefni háskólanema ákveðnar af fulltrúaráði - stúdentafulltrúum allra háskólanna sjö sem og stúdentafulltrúum í háskólanámi erlendis - og í kjölfarið sendi framkvæmdastjórn LÍS spurningarnar á alla flokka sem bjóða fram í Alþingiskosningum 2024. (fyrir utan Ábyrga framtíð þar sem hann býður einungis fram í einu kjördæmi).
Framkvæmdastjórn LÍS heimsótti allar kosningamiðstöðvar til að ræða við frambjóðendur um málefni og áskoranir sem blasa við stúdentum og afhenda formlega spurningarnar fjórar. Svör og áherslur flokkanna verða birt hér sem veganesti fyrir stúdenta inn í kjörklefana í miðjum prófaundirbúningi.