Háskólinn á Hólum
Háskólinn á Hólum er staðsettur í Hólum í Hjaltadal. Háskólinn er miðstöð fyrir kennslu og rannsóknir í hrossarækt og hestamennsku, fiskeldi og ferðaþjónustu í dreifbýli. Frá árinu 2013 hefur skólinn lotið undir lög um opinbera háskóla.
Við vekjum athygli á því að ekki hafa ennþá fengist ný svör um aðgengismála spurningalistann og því er eldri útgáfan af honum notuð hér að neðan í augnablikinu.
Vefslóð: holar.is
Hafa samband
Sími: 455 6300
Netfang: holar@holar.is
Einkunn
Námsráðgjöf Háskólans á Hólum
Heimasíða: https://www.holar.is/is/skolinn/thjonusta-1/namsradgjof/namsradgjof
Netfang: thorey@holar.is
Núverandi námsráðgjafi Háskólans á Hólum er Þórey Þórarinsdóttir og skula viðtalsbeiðnir sendast á thorey@holar.is
Helstu verkefni námsráðgjafa Háskólans á Hólum eru:
• Ráðgjöf um vinnubrögð í háskólanámi
• Markmiðs- og áætlanagerð
• Námstækni
• Úrræði vegna námserfiðleika
• Lífstíll og venjur
• Próftaka
• Persónuleg ráðgjöf og stuðningur
• Mat og greining á náms- og starfsfærni
Þetta verkefni er styrkt af ÖBÍ réttindasamtökum
Spurning | Svarið |
---|---|
Geta nemendur nálgast glærur kennara á námsgagnasíðu á vegum skólans? | Já |
Geta nemendur nálgast hljóðupptökur af kennslustundum skólans? | Já. Í þeim námskeiðum sem kennd eru í fjarnámi. |
Geta nemendur nálgast myndupptökur af kennslustundum skólans? | Nei |
Geta nemendur óskað eftir að fá aðstoð glósuvinar í kennslustundum sem veitir aðstoð við að skrá niður glósur í tímum? | Já |
Geta nemendur fengið glósur á blindraletri? | Hefur ekki komið upp |
Eru bækur á stafrænu formi fyrir tölvuþul í boði fyrir nemendur? | Já |
Eru góðir stólar í öllum kennslustofum, þar sem það á við? | Já |
Eru borð fyrir alla nemendur í kennslustofum, þar sem það á við? | Já |
Er möguleiki á upphækkun á borðum í kennslustofum? | Já |
Hafa einstaklingar með lestrarörðugleika aðgengi að öllu starfi skólans án aðstoðar? | Ég átta mig ekki á þessari spurningu |
Hafa einstaklingar með lestrarörðugleika möguleika á að hlusta á allt námsefni og upplýsingar? | Já, ef þeir eru með tölvuþul |
Eru skýringarmyndir til stuðnings við texta í öllu námsefni og upplýsingum? | Nei |
Eru allar upplýsingar og fyrirmæli aðgengilegar á skýru og einföldu máli? | Já |
Hafa allir heyrnarskertir og/eða heyrnarlausir einstaklingar aðgengi að starfsemi skólans? | Já |
Hafa heyrnarskertir og heyrnarlausir einstaklingar afnot að tónmöskva í kennslustundum? | Nei. Hefur ekki komið upp |
Eru tölvur með sérhæfðum búnað fyrir blinda og sjónskerta til staðar? | Nei |
Spurning | Svarið |
---|---|
Er hjólastólaaðgengi inn og út úr byggingum skólans? | Já |
Er almennt hjólastólaaðgengi innan bygginga skólans? | Já |
Er jafnt og þétt undirlag án hæðarmunar á skólasvæðinu? | Nei |
Eru breiðar dyr og hurðir fyrir hjólastóla, sem auðvelt er að opna á skólasvæðinu? | Nei |
Eru breiðir gangar og snúningsstaðir fyrir hreyfihamlaða? | Bæði og, er til staðar ef á þarf að halda |
Eru innréttingar og búnaðir í réttri hæð fyrir hjólastólanotendur? | Nei |
Eru lyftur fyrir hreyfihamlaða til þess að komast á milli hæða? | Já |
Eru læstar lyftur í byggingum háskólans? Ef svarið er já vinsamlegast takið fram í útskýringum hvernig sé hægt að opna téðar lyftur og hverjir hafa aðgang að læstum lyftum. | Já |
Eru lyftur opnar fyrir almenna notkun? | Já |
Er salernisaðstaða fyrir hreyfihamlaða á skólasvæðinu? | Já |
Eru bílastæði nálægt aðalinngangi bygginga? | Já |
Er reglulegur snjómokstur á bílastæðum á skólalóð/ við byggingar skólans? | Já |
Er reglulegur snjómokstur á göngustígum á skólasvæðinu? | Engir göngustígar |
Eru tröppur ávallt með handlistum beggja vegna? | Nei |
Eru reglulegir hvíldarstaðir á gönguleiðum þar sem hægt er að setjast niður? | Engar ákveðnar gönguleiðir á svæðinu |
Eru hvíldarrými/herbergi fyrir nemendur sem vegna veikinda eða fötlunar þurfa á slíku að halda? | Já |
Uppfylla rampar/skábrautir ákvæði byggingarreglugerðar um halla? | Já |
Spurning | Svarið |
---|---|
Hafa nemendur kost á lengri próftíma? | Já |
Geta nemendur óskað eftir að taka próf í rólegum aðstæðum þar sem fáir nemendur deila próftökustað? | Já |
Geta nemendur sótt eftir því að fá ritara í prófum? | Já. Hefur ekki komið upp |
Geta nemendur fengið hvíld innan prófs án skerðingu próftíma? | Já |
Er í boði að taka öll próf í tölvu? | Já |
Er í boði að taka próf í tölvu með stafsetningarforriti? | Já |
Er í boði að taka öll próf munnlega? | Já |
Geta nemendur fengið stækkuð prófblöð? | Já |
Geta nemendur fengið stækkað letur á prófblöðum? | Já |
Geta nemendur fengið lituð prófblöð? | Já |
Geta nemendur fengið próf á blindraletri? | Hefur ekki komið upp |
Spurning | Svarið |
---|---|
Býður skólinn upp á niðurgreidda sálfræðiþjónustu? | Nei |
Býður skólinn upp á ókeypis sálfræðiþjónustu? | Nei |
Er möguleiki á stuðningsviðtali hjá starfsmanni skólans, t.d. hjá námsráðgjafa? | Já |
Hefur skólinn táknmálstúlk fyrir nemendur? | Hefur ekki komið upp |
Hefur skólinn rittúlk fyrir nemendur? | Hefur ekki komið upp |
Er prófkvíðanámskeið í boði fyrir nemendur á vegum skólans? | Já |
Er námskeið varðandi námstækni í boði fyrir nemendur á vegum skólans? | Já |
Býður skólinn upp á annars konar hjálparnámskeið? | Já |
Spurning | Svarið |
---|---|
Eru stúdentagarðar í göngufæri við skólann? | Já |
Eru stúdentaíbúðir í færi með almenningssamgöngum? | Þær eru í göngufæri |
Eru stúdentaíbúðir í færi með einkabíl? | Þær eru í göngufæri |
Eru sérútbúnar íbúðir fyrir fatlaða á stúdentagörðum skólans? | Nei |
Spurning | Svarið |
---|---|
Veitir skólinn upplýsingar um réttindi allra nemenda? | Já. Nemendum er gert skylt að lesa námsreglur skólans. |
Eru upplýsingar um réttindi nemenda á heimasíðu skólans? | Já |
Er starfsmaður/starfsmenn í skólanum með upplýsingar á færi varðandi rétt nemenda? | Já |
Benda starfsmenn (t.d. náms- og starfsráðgjafar) skólans nemendum á Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? | Nei |
Benda starfsmenn skólans fötluðu fólki á réttindi sem það hefur hjá Öryrkjabandalaginu og öðrum sambærilegum samtökum? | Já. Veitum upplýsingar eftir þörfum |