Landbúnaðarháskóli Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands er staðsettur á Hvanneyri en kennsla og starfsemi er einnig á öðrum stöðum á landinu. Skólinn hefur sérstöðu meðal háskóla hérlendis en þessi sérstaða felst fyrst og síðast í viðfangsefni skólans sem er náttúra Íslands - nýting, viðhald og verndun.

Við drögum athygli að því að ekki hafa ennþá fengist ný svör um aðgengismála spurningalistann og því er eldri útgáfan af honum notuð hér að neðan í augnablikinu.

Vefslóð: lbhi.is

Hafa samband

Sími: 433 5000

Netfang: lbhi@lbhi.is

Einkunn

Náms- og starfsráðgjöf LBHÍ

Heimasíða: https://www.lbhi.is/nam/thjonusta/nams-og-starfsradgjof

Netfang: nams@lbhi.is

Núverandi Námsráðgjafi LBHÍ er Þórey Þórarinsdóttir og hægt er að panta tíma hjá henni í gegnum netfangið: nams@lbhi.is

Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum ýmsa þjónustu, leiðbeiningar og stuðning á meðan á námi stendur og leggur áherslu á að sníða hana að þörfum þeirra sem eftir henni leita, m.a.

● Ráðgjöf og leiðsögn um vinnubrögð í háskólanámi

● Námskeið í námstækni og kvíðastjórnun

● Ráðgjöf vegna sértækra námsörðugleika eða fötlunar

● Ráðgjöf og leiðsögn á mati og greiningu á náms- og starfsfærni

● Persónuleg ráðgjöf og stuðningur vegna tímabundinna erfiðleika í einkalífi

● Áhugasviðsgreining

● Starfsráðgjöf

Nemendur geta fengið leiðsögn um val á námi sem og upplýsingar um þá þjónustu sem stendur þeim til boða innan skólans. Náms- og starfsráðgjafi hefur umsjón með málefnum fatlaðra nemenda og nemenda með sértæka námsörðugleika.

Þetta verkefni er styrkt af ÖBÍ réttindasamtökum og kemur frá verkefninu Réttinda Ronja

Spurning Svarið
Geta nemendur nálgast glærur kennara á námsgagnasíðu á vegum skólans?
Geta nemendur nálgast hljóðupptökur af kennslustundum skólans?
Geta nemendur nálgast myndupptökur af kennslustundum skólans? Já. Ef myndupptökur hafa verið gerðar, þá já.
Geta nemendur óskað eftir að fá aðstoð glósuvinar í kennslustundum sem veitir aðstoð við að skrá niður glósur í tímum? Það hefur ekki verið eftirspurn eftir því
Geta nemendur fengið glósur á blindraletri? Það hefur ekki verið eftirspurn eftir því
Eru bækur á stafrænu formi fyrir tölvuþul í boði fyrir nemendur?
Eru góðir stólar í öllum kennslustofum, þar sem það á við?
Eru borð fyrir alla nemendur í kennslustofum, þar sem það á við?
Er möguleiki á upphækkun á borðum í kennslustofum? Nei
Hafa einstaklingar með lestrarörðugleika aðgengi að öllu starfi skólans án aðstoðar? Óljós spurning, óljóst hvað verið er að spyrja um.
Hafa einstaklingar með lestrarörðugleika möguleika á að hlusta á allt námsefni og upplýsingar?
Eru skýringarmyndir til stuðnings við texta í öllu námsefni og upplýsingum?
Eru allar upplýsingar og fyrirmæli aðgengilegar á skýru og einföldu máli?
Hafa allir heyrnarskertir og/eða heyrnarlausir einstaklingar aðgengi að starfsemi skólans? Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því.
Hafa heyrnarskertir og heyrnarlausir einstaklingar afnot að tónmöskva í kennslustundum? Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því.
Eru tölvur með sérhæfðum búnað fyrir blinda og sjónskerta til staðar? Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því.
Spurning Svarið
Er hjólastólaaðgengi inn og út úr byggingum skólans?
Er almennt hjólastólaaðgengi innan bygginga skólans?
Er jafnt og þétt undirlag án hæðarmunar á skólasvæðinu?
Eru breiðar dyr og hurðir fyrir hjólastóla, sem auðvelt er að opna á skólasvæðinu? Já. Breiðar dyr en ekki allar með sjálfvirkum hurðaopnum.
Eru breiðir gangar og snúningsstaðir fyrir hreyfihamlaða?
Eru innréttingar og búnaðir í réttri hæð fyrir hjólastólanotendur? Hefur komið til móts við nemendur þegar þess þarf.
Eru lyftur fyrir hreyfihamlaða til þess að komast á milli hæða?
Eru læstar lyftur í byggingum háskólans? Ef svarið er já vinsamlegast takið fram í útskýringum hvernig sé hægt að opna téðar lyftur og hverjir hafa aðgang að læstum lyftum. Nei
Eru lyftur opnar fyrir almenna notkun?
Er salernisaðstaða fyrir hreyfihamlaða á skólasvæðinu?
Eru bílastæði nálægt aðalinngangi bygginga?
Er reglulegur snjómokstur á bílastæðum á skólalóð/ við byggingar skólans?
Er reglulegur snjómokstur á göngustígum á skólasvæðinu?
Eru tröppur ávallt með handlistum beggja vegna?
Eru reglulegir hvíldarstaðir á gönguleiðum þar sem hægt er að setjast niður? Ekki á öllum gönguleiðum en einhverjum
Eru hvíldarrými/herbergi fyrir nemendur sem vegna veikinda eða fötlunar þurfa á slíku að halda?
Uppfylla rampar/skábrautir ákvæði byggingarreglugerðar um halla?
Spurning Svarið
Hafa nemendur kost á lengri próftíma?
Geta nemendur óskað eftir að taka próf í rólegum aðstæðum þar sem fáir nemendur deila próftökustað?
Geta nemendur sótt eftir því að fá ritara í prófum?
Geta nemendur fengið hvíld innan prófs án skerðingu próftíma?
Er í boði að taka öll próf í tölvu?
Er í boði að taka próf í tölvu með stafsetningarforriti?
Er í boði að taka öll próf munnlega?
Geta nemendur fengið stækkuð prófblöð?
Geta nemendur fengið stækkað letur á prófblöðum?
Geta nemendur fengið lituð prófblöð? Nei. Nemendur fá litaglærur.
Geta nemendur fengið próf á blindraletri? Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því.
Spurning Svarið
Býður skólinn upp á niðurgreidda sálfræðiþjónustu? Nei
Býður skólinn upp á ókeypis sálfræðiþjónustu? Nei
Er möguleiki á stuðningsviðtali hjá starfsmanni skólans, t.d. hjá námsráðgjafa?
Hefur skólinn táknmálstúlk fyrir nemendur? Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því.
Hefur skólinn rittúlk fyrir nemendur? Nei. Ekki verið eftirspurn eftir því.
Er prófkvíðanámskeið í boði fyrir nemendur á vegum skólans?
Er námskeið varðandi námstækni í boði fyrir nemendur á vegum skólans?
Býður skólinn upp á annars konar hjálparnámskeið?
Spurning Svarið
Eru stúdentagarðar í göngufæri við skólann?
Eru stúdentaíbúðir í færi með almenningssamgöngum?
Eru stúdentaíbúðir í færi með einkabíl? Já. Skólar LBHÍ eru í dreifbýli og því eru almenningssamgöngur samkvæmt því.
Eru sérútbúnar íbúðir fyrir fatlaða á stúdentagörðum skólans?
Spurning Svarið
Veitir skólinn upplýsingar um réttindi allra nemenda?
Eru upplýsingar um réttindi nemenda á heimasíðu skólans?
Er starfsmaður/starfsmenn í skólanum með upplýsingar á færi varðandi rétt nemenda? Já. Ólíklegt að allir starfsmenn búi yfir þeim upplýsingum en lykilstarfsmenn vita þær.
Benda starfsmenn (t.d. náms- og starfsráðgjafar) skólans nemendum á Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? Nei
Benda starfsmenn skólans fötluðu fólki á réttindi sem það hefur hjá Öryrkjabandalaginu og öðrum sambærilegum samtökum?