Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands er staðsettur í Reykjavík og starfar á sviði lista og menningar.
Vefslóð: lhi.is
Hafa samband
Sími: 545 2200
Netfang: lhi@lhi.is
Hver háskóli hefur svarað spurningarlista um hin ýmsu aðgengismál. Spurningalistinn er í 7 köflum: aðgengi, námið, próftaka, starfsemi, húsnæðismál, réttindi nemenda og jafnrétti og fræðsla. Hér fyrir neðan má sjá svör og einkunnargjöf fyrir Listaháskóla Íslands.
Einkunn
Námsráðgjöf LHÍ
Heimasíða: https://www.lhi.is/namsradgjof
Netfang: namsradgjof@lhi.is
Símanúmer: 545 2200
Núverandi námsráðgjafar LHÍ eru Ragnhildur Ísleifs Ólafsdóttir og Inga Guðrún Kristjánsdóttir. Þær eru staðsettar í Stakkahlíð en fara reglulega í aðrar byggingar skólans og hitta nemendur. Viðvera í öðrum byggingum er auglýst sérstaklega á hverjum stað. Nemendur í Listaháskólanum geta bókað viðtal í gegnum heimasíðu eða með því að senda tölvupóst.
Námsráðgjöf hefur það að markmiði að efla vitund nemenda um viðhorf sín, áhuga og hæfileika þannig að þeir fái notið sín í námi. Sjálfsnám er stór þáttur í háskólanámi og því mikilvægt að nemendur tileinki sér góðar námsvenjur strax í upphafi náms.
Í námsráðgjöf LHÍ er lögð áhersla á að styrkja nemendur með því að veita stuðning tengdum:
● tækifærum og ögrunum í námi,
● andlegri líðan og heilbrigðum lífsstíl,
● samskiptum við nemendur og starfsfólk,
● framtíðarsýn og tækifærum.
Þetta verkefni er styrkt af ÖBÍ réttindasamtökum
| Spurning | Svarið |
|---|---|
| Er hjólastólaaðgengi inn og út úr öllum byggingum skólans? | Nei |
| Er almennt hjólastólaaðgengi innan bygginga skólans? | Nei |
| Er jafnt og þétt undirlag án hæðarmunar á skólasvæðinu? (Stígar ekki úr möl, hellur óbrotnar, auðvelt að komast upp á gangstéttir og í gegnum dyr, hæðamunur ekki meiri en 2,5cm) | Nei |
| Er skólinn í einni innangengri byggingu? | Nei |
| Eru breiðar dyr og hurðir fyrir hjólastóla, sem einnig er auðvelt að opna á skólasvæðinu? | Nei |
| Eru breiðir gangar og snúningsstaðir fyrir hreyfihamlaða? | Nei |
| Eru innréttingar og búnaðir í réttri hæð fyrir hjólastólanotendur? | Nei |
| Eru lyftur fyrir hreyfihamlaða til þess að komast á milli hæða? | Nei |
| Geta allir notað lyfturnar í skólanum án lykils? | Já |
| Eru klósett fyrir hreyfihamlaða í öllum byggingum skólans? | Nei |
| Eru blá bílastæði nálægt aðalinngangi bygginga? | Nei |
| Er reglulegur snjómokstur á göngustígum á skólasvæðiu? | Nei |
| Eru handrið báðum megin í stigum? | Nei |
| Eru staðir þar sem hægt er að setjast niður og hvíla sig fyrir fatlaða nemendur eða aðra sem þurfa? | Nei |
| Eru herbergi til að hvíla sig fyrir fatlaða nemendur eða aðra sem þurfa? | Já |
| Uppfylla rampar ákvæði byggingar-reglugerðar um halla? | Nei |
| Er kort af byggingu skólans á heimasíðu skólans? | Nei |
| Er hægt að skoða kort af skólanum á netinu þar sem sjá má aðgengi fyrir fólk sem notar hjálpartæki? | Nei |
| Eru línur í gólfum fyrir blindrastafi? | Nei |
| Eru stofur merktar með blindraletri? | Nei |
| Er eiithvað annað tengt aðgengi sem skólinn býður upp á? | Það er verið að vinna í nýrri heimasíðu þar sem aðgengisupplýsingar verða aðgengilegar. |
| Spurning | Svarið |
|---|---|
| Eru nemendur látnir vita með tölvupósti í upphafi hverrar annar hvar skal fá upplýsingar um stuðning í námi? | Já |
| Hafa allir nemendur greiðan aðgang að skrifstofu náms- og starfsráðgjafa? | Já |
| Geta nemendur nálgast glærur kennara á netinu? | Misjafnt eftir kennurum. Engar miðlægar reglur um það |
| Geta nemendur nálgast hljóðupptökur af kennslustundum skólans? | Nei |
| Geta nemendur nálgast myndbandsupptökur af kennslustundum skólans? | Nei |
| Geta nemendur fengið glósu-vin? Glósuvinur er annar nemandi sem skrifar niður það sem er sagt í kennslustund | Það hefur komið fyrir en oft ekki verið hægt að uppfylla óskir nemenda um þetta |
| Geta nemendur fengið glósur á blindraletri? | Nei |
| Er hægt að fá bækur á stafrænu formi fyrir tölvu-þul, svo hægt sé að láta tölvu lesa upp náms-bækur? | Þekki það ekki nægilega vel |
| Eru góðir stólar í öllum kennslustofum? | Nei |
| Eru borð fyrir nemendur í öllum kennslustofum (s.s. ekki bara stólar með felliborðum)? | Já |
| Geta nemendur fengið borð sem hægt er að hækka og lækka? | Nei |
| Geta nemendur sem eiga erfitt með að lesa fengið að hlusta á allt námsefni og upplýsingar? | Nei |
| Eru myndir notaðar til að útskýra námsefni? | Stundum |
| Eru upplýsingar frá skólanum á skýru og einföldu máli? | Mjög misjafnt eftir því hvaða deild/teymi er að senda út |
| Hafa allir heyrnarskertir einstaklingar aðgengi að öllum námsgreinum skólans? | Nei |
| Geta heyrnarskertir nemendur fengið tónmöskva í kennslustundum? | Nei |
| Eru tölvur með sérhæfðum búnaði fyrir blinda og sjónskerta til staðar í skólanum? | Nei |
| Spurning | Svarið |
|---|---|
| Geta nemendur sem þurfa af einhverjum ástæðum að vera utan skóla fengið að taka fjarpróf? | Það er mjög misjafnt |
| Hafa nemendur kost á lengri próftíma, sem á því þurfa? | Já |
| Geta nemendur tekið próf á ensku? | Reglur skólans segja að öll próf eigi að vera á íslensku en þó er hægt að taka sum próf á ensku og veltur það á deildinni |
| Geta nemendur óskað eftir að taka próf í rólegum aðstæðum þar sem færri nemendur deila próftökustað? | Hefur ekki reynt á það samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef |
| Geta nemendur sótt um að hafa ritara í prófum? | Nei |
| Geta nemendur fengið hvíld innan prófs án skerðingar próftíma? | Nei |
| Er í boði að taka öll próf í tölvu? | Misjafnt eftir deildum |
| Er í boði að taka próf í tölvu með stafsetningarforriti? | Misjafnt eftir deildum |
| Er í boði að taka öll próf munnlega? | Nei |
| Geta nemendur fengið próf upplesin (t.d. með talgervli)? | Nei |
| Geta nemendur fengið próf á blindraletri? | Nei |
| Er í boði að fá hljóðeinangrandi eyrnarskjól í prófum? | Nei |
| Eru einhver prófúrræði sem skólinn býður upp á sem ekki hafa komið fram hér að ofan? | Nei |
| Spurning | Svarið |
|---|---|
| Er sálfræðiþjónusta í boði fyrir nemendur innan veggja skólans? | Já |
| Býður skólinn upp á sálfræðiþjónustu fyrir nemendur þeim að kostnaðarlausu? | Skólinn býður upp á 1 frían sálfræðitíma fyrir nemendur |
| Býður skólinn upp á niðurgreidda sálfræðiþjónustu? | Nei |
| Er möguleiki á stuðningsviðtali hjá starfsfólki skólans, t.d. hjá námsráðgjafa? | Já |
| Getur skólinn boðið upp á táknmálstúlk fyrir nemendur? | Nei |
| Getur skólinn boðið upp á rittúlk fyrir nemendur? | Nei |
| Er prófkvíðanámskeið í boði fyrir nemendur á vegum skólans? | Nei |
| Er námskeið varðandi námstækni í boði fyrir nemendur á vegum skólans? | Nei |
| Býður skólinn upp á eitthvað umfram það sem hefur komið fram hér að ofan, tengt starfsemi skólans á einn eða annan hátt? | Nei |
| Spurning | Svarið |
|---|---|
| Eru stúdentagarðar í göngufæri við skólann? | BN íbúðir eru í nágrenni einnar af mörgum byggingum skólans |
| Eru stúdentaíbúðir í færi með almenningssamgöngum? | Já |
| Eru stúdentaíbúðir í færi með einkabíl? | Já |
| Eru sérútbúnar íbúðir fyrir fatlaða á stúdentagörðum skólans? | Nei |
| Spurning | Svarið |
|---|---|
| Eru upplýsingar um réttindi nemenda aðgengilegar á heimasíðu skólans? | Nei |
| Er ákveðið starfsfólk í skólanum með upplýsingar á færi varðandi rétt nemenda? | Já |
| Bendir starfsfólk (t.d. náms- og starfsráðgjöf) skólans nemendum á Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? | Nei |
| Bendir starfsfólk skólans fötluðu fólki á þjónustu sem það getur nálgast hjá Öryrkjabandalaginu og öðrum sambærilegum samtökum? | Nei |
| Heilt yfir, getur skólinn vel sinnt þörfum nemenda með sérþarfir? | Nei |
| Býður skólinn upp á eitthvað umfram það sem komið hefur fram hér að ofan tengt réttindum nemenda á einn eða annan hátt? | Nei |
| Spurning | Svarið |
|---|---|
| Tryggir skólinn reglulega fræðslu til kennara og starfsfólks? | Nei |
| Er hagsmunafélag í skólanum sem er aðgengilegt öllum? | Já |
| Er virkt hinseginfélag í skólanum sem er aðgengilegt öllum? | Nei |
| Er virkt jafnréttisfélag sem er aðgengilegt öllum? | Nei |
| Er skólinn með verklagsáætlun ef upp koma ofbeldismál? | Já |
| Er aðgengileg viðbragðsáætlun vegna ofbeldis á heimasíðu skólans? | Já |
| Er tilkynningarhnappur vegna ofbeldis á heimasíðu skólans? | Já |
| Hafa þolendur ofbeldis greiðan aðgang að tilkynna slík mál innan skólans? | Já |
| Leitar skólinn til utanaðkomandi sérfræðinga er upp koma ofbeldismál? | Já |
| Er markvisst unnið gegn kynbundnu ofbeldi innan skólans? | Já |
| Fá kennarar kynfræðslu í skólanum? | Nei |
| Fá kennarar kynjafræðslu í skólanum? | Nei |
| Fá kennarar hinseginfræðslu í skólanum? | Nei |
| Er kynjalaus klósett aðstaða? | Næstum því öllum byggingum |