Fulltrúaráðsfundur 18. desember

Mánudaginn 18. desember kl 17:00 verður fundur hjá fulltrúaráði LÍS.

Í fulltrúaráði LÍS sitja 2 fulltrúar frá hverju aðildarfélagi LÍS. Að LÍS standa átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis.

Fulltrúaráðsfundir eru skv. lögum LÍS opnir öllum stúdentum og hvetjum við alla háskólanema með áhuga á hagsmunabaráttu stúdenta að sækja fundina. Að þessu sinni er fundurinn haldinn í Háskólanum í Reykjavík í stofu M306. Fulltrúar í fulltrúaráði geta nálgast fundargögn á heimasvæði fundarins.

Make it stand out

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Fundargerð síðasta fundar borin upp til samþykktar

  2. Fréttir

  3. Kjör alþjóðafulltrúa

  4. Verklagsbreytingar

  5. Landsþing LÍS

  6. Skrásetningargjöld í Háskóla Íslands. Mál frá SHÍ

  7. BM í Tallinn

  8. Samstarf við LUF

  9. Önnur mál

Previous
Previous

Ársskýrsla 2022-2023

Next
Next

Opið fyrir framboð í stöðu alþjóðafulltrúa