Hádegisfundur BHM og LÍS - Ungt fólk á bið: Námslán, húsnæði og leiðin til sjálfstæðis
Hversu greið er leið ungs háskólafólks frá námi til fjárhagslegs sjálfstæðis? BHM og Landssamtök íslenskra stúdenta standa fyrir hádegisfundi í Norræna húsinu 10. nóvember kl. 11:30 - 13:30 þar sem sjónum verður beint að samspili námslána, vinnu með námi, húsnæðisstöðu og sjálfstæðrar búsetu.
Fundurinn er framhald af umfangsmikilli könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði. Að henni standa aðildarfélög BHM ásamt Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélagi Íslands, Læknafélagi Íslands og Verkfræðingafélagi Íslands.
Nú verður sjónum sérstaklega beint að ungu fólkinu á aldrinum 18-34 ára og leið þess frá námi til sjálfstæðis. Fjallað verður um veikleika námslánakerfisins, flókna stöðu fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði og þær fjárhagslegu hindranir sem gera ungu fólki erfitt fyrir að koma sér upp eigin heimili.
Taktu þátt í mikilvægu samtali um námslán, húsnæði og leið ungs fólks til sjálfstæðis. Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.