Krefjast samráðs og að hagsmunir nemenda HR séu tryggðir við framkvæmdir Borgarlínu
Krefjast samráðs og að hagsmunir nemenda HR séu tryggðir við framkvæmdir Borgarlínu
Fulltrúar Landssamtaka íslenskra stúdenta, LÍS, og Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík (SFHR) afhentu í dag Heiðu Björg, borgarstjóra Reykjavíkur, formlega yfirlýsingu þar sem lýst er yfir verulegum áhyggjum af áhrifum framkvæmda við Borgarlínu á nemendur Háskólans í Reykjavík. Yfirlýsingin, sem var samþykkt samhljóða á landsþingi LÍS á Akureyri þann 11. apríl síðastliðinn, krefst þess að beðið verði með óafturkræfar aðgerðir á svæðinu þar til raunverulegt samráð hefur átt sér stað við stúdenta.
Í yfirlýsingunni er lögð rík áhersla á að þótt stúdentar geti ekki stöðvað breytingarnar, verði Reykjavíkurborg, Betri samgöngur og HR að setja hagsmuni nemenda í forgang. Skortur á upplýsingagjöf og óljósar áætlanir um mótvægisaðgerðir eru gagnrýndar harðlega.
Helstu áhyggjuefni og kröfur stúdenta sem koma fram í yfirlýsingunni:
Skortur á samráði og upplýsingum: Enn hefur ekki verið gerð grein fyrir því hvernig koma eigi til móts við nemendur á framkvæmdatíma. Rætt hefur verið um samstarf við Strætó og tímabundin bílastæði, en engar skýrar áætlanir liggja enn fyrir.
Aðgengi og fækkun bílastæða: Fyrir liggur að stæðum við skólann mun fækka um 23% þegar mörg hundruð stæði, þar á meðal malarplanið, munu hverfa. Ljóst er að þetta mun raska daglegu skipulagi og aðkomu stórs hluta nemenda.
Harðlega lagst gegn gjaldtöku á bílastæðum: SFHR ítrekar eindregna andstöðu sína við áform um gjaldtöku á þeim bílastæðum sem eftir verða á landi Háskólans í Reykjavík. Stúdentar telja óverjandi að nemendur þurfi að bera aukinn fjárhagslegan kostnað ofan á skert aðgengi.
Svikin loforð um þungaflutninga á háannatíma: Þrátt fyrir fyrirheit ábyrgðaraðila um að þungaflutningar fari ekki fram þegar umferð nemenda er hvað mest, hafa fjölmargar athugasemdir borist um þungaflutninga milli klukkan 8:00 og 9:00 á morgnana. Slíkt er með öllu óásættanlegt.
Áhrif á námsumhverfið: Framkvæmdirnar mega undir engum kringumstæðum skerða aðstöðu eða aðgengi að stoðþjónustu vegna hljóð- eða sjónmengunar.
„SFHR og LÍS munu beita sér af fullum þunga fyrir því að hagsmunir nemenda verði virtir og varðir,“ segir í lok yfirlýsingarinnar. Þess er krafist að nemendur, sem einir helstu hagaðilar skólans, eigi framvegis ávallt sæti við borðið við ákvarðanatöku í þessu umfangsmikla máli.
Lesa má yfirlýsinguna í heild hér: „Yfirlýsing varðandi áhrif framkvæmda tegndum Borgarlínunni á nemendur við Háskólann í Reykjavík“
Landsþing LÍS 2026
Stærsti samráðsvettvangur stúdenta, hið árlega Landsþing íslenskra stúdenta, var haldið nú um helgina í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri. Yfirskrift þingsins var Háskólastefna og sjónarhorn stúdenta, og var helgin nýtt í vinnustofur til þess að meitla áherslur stúdenta í fyrirhugaðri háskólastefnu stjórnvalda.
Á Landsþingi koma saman háskólanemar frá öllum háskólum landsins og fulltrúar nemenda í námi erlendis, til þess að bera saman bækur sínar og stefnumóta áherslur stúdentahreyfingarinnar á landsvísu. Á þinginu voru teknar fyrir á annan tug ályktana og yfirlýsinga frá stúdentafulltrúum og líflegar umræður um háskólasamfélagið einkenndu helgina.
Stúdent óskast! Launuð staða.
LÍS og Gæðamat háskóla leita að áhugasömum háskólanema til að taka þátt í stofnanarúttekt Háskóla Íslands (háskólasamstæðu). Um er að ræða fjögurra daga útttektarheimsókn og tvo vinnufundadaga.
Opið fyrir umsóknir hér: https://forms.gle/U8LwsQTzdHRpUo2p7
//
Student needed - paid position
LÍS and the Icelandic Agency (IAQA) seek a dedicated student to join a review panel for the review of the University of Iceland and Hólar University. The preparatory work and review days will be paid.
Apply via application link here: https://forms.gle/U8LwsQTzdHRpUo2p7
Yfirlýsing til stuðnings grænslenskum stúdentum
Ljósmynd: Júlíus Andri Þórðarson
Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) lýsa yfir stuðningi og samstöðu með grænlenskum stúdentum, bæði sem stunda nám sitt á Grænlandi sem og utan landsteinanna, í ljósi pólitískrar óvissu sem ríkir um framtíð landsins. Undanfarið hafa ummæli og aðgerðir bandarískra stjórnvalda, auk forseta landsins, skapað óöryggi og hræðslu meðal Grænlendinga og dregið úr sjálfsákvörðunarrétti þeirra. Gjörðir og ummæli um landið hafa varpað skýru ljósi á það hvernig stórveldahagsmunir geta haft mikil áhrif á smærri samfélög og í tilfelli Grænlands endurspegla áframhaldandi mynstur þar sem framtíð Grænlands er rædd án fullrar þáttöku og samþykki Grænlendinga sjálfra.
LÍS leggur ríka áherslu á að velferð og geðheilsa grænlenskra stúdenta séu höfð að leiðarljósi í allri umræðu og er varðar framtíð Grænlands, en núverandi staða og umræða um framtíð landsins getur haft í för með sér aukið álag á grænlenska nemendur og getur haft áhrif á líðan, öryggistilfinningu og geðheilsu þeirra. Stúdentar eiga rétt á öruggu námsumhverfi þar sem tekið er tillit til félagslegra, menningarlegra og pólitískra þátta sem móta líf þeirra og tryggt að raddir grænlenskra stúdenta fái að heyrast. Landssamtök íslenskra stúdenta lýsa yfir samstöðu með grænlenskum stúdentum og réttindabaráttu þeirra, og leggja áherslu á að menntun, velferð og geðheilsa stúdenta megi aldrei verða undir í stórveldapólitík.
Opið fyrir framboð í framkvæmdastjórn LÍS 2026-2027
// English below //
LÍS óska eftir framboði í framkvæmdastjórn LÍS fyrir starfsárið 2026 - 2027. Framboðsfrestur er til og með 5. mars 2026. Hafir þú áhuga skaltu senda kynningarbréf og ferilskrá á kjorstjorn@studentar.is.
Kosið er í embætti á Landsþingi stúdenta sem haldið verður 19. - 22. mars á Akureyri.
Mikilvægar upplýsingar:
Það eru fimm embætti í framkvæmdastjórn LÍS fyrir starfsárið 2026 - 2027.
Forseti
Varaforseti
Gæðastjóri
Alþjóðafulltrúi
Jafnréttisfulltrúi
Við hvetjum frambjóðendur til þess að kynna sér lög og verklag samtakanna vel, en nánari upplýsingar um hvert embætti má einmitt finna þar. Þú getur líka haft samband við sitjandi embættismenn, en tengiliðaupplýsingar má finna hér.
Á myndunum að neðan má sjá helstu verkefni hvers embættis.
Starfsárið hefst í byrjun júní 2026 og er til loka maí 2027.
Tímabilið frá kosningu embætta á Landsþingi fram að byrjun starfsársins er nýtt til þekkingarmiðlunar nýkjörinna fulltrúa frá fráfarandi framkvæmdastjórnarmeðlimum samtakanna.
Vinnutungumál LÍS er íslenska.
Efni til birtingar er bæði á ensku og íslensku en fundargögn eru almennt á íslensku
Kjörgengi hafa…
Öll sem stunda háskólanám á Íslandi og/eða eru meðlimir í aðildarfélagi LÍS
Frambjóðendur mega hafa lokið námi, ef það eru innan við tvö ár frá námslokum.
Applications are open for LÍS’ Executive Committee for 2026-2027.
The application deadline is March 5th, if you are interested, please send an introductory letter and CV to kjorstjorn@studentar.is.
Elections are held at the Student General Assembly which will be held at the University of Akureuri March 19th - March 22nd.
Important information:
There are five positions in the executive board of LÍS for the working year 2026-2027
President
Vice President
Quality officer
International officer
Equality officer
We encourage candidates to familiarize themselves with the association's laws and procedures, but more detailed information about each position can be found there. You can also contact our current officials, whose contact details can be found here.
The working year starts at the beginning of June 2026 and ends in May 2027.
The period from the election of offices in the National Assembly until the beginning of the working year is used to learn about the role from the outgoing executive committee.
The working language of LÍS is Icelandic
Material for publication is in both English and Icelandic, but meeting documents are generally in Icelandic
Who can apply for the EC?
Everyone who is studying at an Icelandic university and/or is a member of LÍS's member associations.
Candidates may have completed their studies, if it is less than two years since the end of their studies