Samtal í Háskóla Íslands

Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) og Stúdentaráð Háskóla Íslands (SHÍ) stóðu í dag fyrir Samtali þjóðar í Háskóla Íslands þar sem stúdentar komu saman til að ræða framtíð samfélagsins og velta fyrir sér spurningunni: Hvernig samfélag viljum við skapa saman?

Samtalið í Háskóla Íslands var það fjölmennasta sem haldið var á vegum verkefnisins og jafnframt eina samtalið sem fór fram á ensku auk íslensku. Með því vildi stúdentahreyfingin tryggja að alþjóðanemar og innflytjendur gætu einnig tekið virkan þátt í umræðunni og lagt sitt af mörkum til að móta framtíð íslensks samfélags.

Samtal þjóðar er verkefni sem varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og byggir á þeirri hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.

Með þátttöku sinni lagði stúdentahreyfingin áherslu á mikilvægi þess að raddir ungs fólks og stúdenta, óháð uppruna og tungumáli, fái að heyrast í samtalinu um framtíð Íslands.

Skoðaðu samantektir úr Samtali frá yfir 20 stöðum um allt land á heimasíðunni talasaman.is.

Previous
Previous

STÚDENT ÓSKAST! STUDENT NEEDED!

Next
Next

Ný skýrsla LÍS og BHM um áhrif og afleiðingar Menntasjóðs námsmanna