Ný skýrsla LÍS og BHM um áhrif og afleiðingar Menntasjóðs námsmanna
Ný greining varpar ljósi á veikleika námslánakerfisins: Markmið 2020-breytinga ekki að skila sér
Landssamtök íslenskra stúdenta og BHM efndu til hádegisfundar þar sem kynntar voru niðurstöður nýrrar greiningar á íslenska námslánakerfinu. Greiningin fjallar um afleiðingar nýs námslánakerfis, sem var kynnt sem veruleg kjarabót fyrir stúdenta, en margfalt hærri vextir og skortur á sveigjanleika í kerfinu hafa gert íslensk námslán verri fyrir stúdenta.
Nanna Hermannsdóttir, hagfræðingur, lánasjóðsfulltrúi SÍNE og höfundur greiningarinnar.
Niðurstöður greiningarinnar eru meðal annars að núverandi námslánakerfi grafi undan markmiðum atvinnustefnu Íslands og eigin lögbundna hlutverki sem „félagslegur jöfnunarsjóður“.
Greiningin fer fram á mikilvægum tímamótum, en fyrstu lántakar nýja kerfisins hafa nú hafið endurgreiðslur og lögbundin heildarendurskoðun laganna er framundan.
Nanna Hermannsdóttir hagfræðingur kynnti helstu niðurstöður greiningarinnar á fundinum og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, var sérstakur gestur og tók þátt í umræðum.
Í greiningunni er meðal annars fjallað um:
Hver markmið nýs námslánakerfis voru og hvers vegna þau náðust ekki
Áhrif hærri vaxta og breyttra skilyrða á stöðu námsmanna
Samanburð við námslánakerfi á Norðurlöndum
Með skýrslunni er ætlað að stuðla að upplýstri umræðu um framtíð námsstuðnings á Íslandi.