Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

BHM og LÍS endurnýja samstarfssamning

Landssamtök íslenskra stúdenta og Bandalag háskólamanna hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli. Einn af nýju áhersluþáttunum í samstarfinu er að standa sameiginlega að lífskjararannsókn meðal stúdenta. Áætlað er að könnunin verði send út á allra næstu dögum.

BHM og LÍS hafa átt í góðu og farsælu samstarfi á undanförnum árum og er nýi samningurinn fyrst og fremst til að skerpa á sameiginlegum áherslumálum og bæta við nýjum sem ástæða þykir að vinna að. Mikilvægt er fyrir félögin að eiga í góðu samstarfi enda verja þau að miklu leyti sameiginlega hagsmuni. Til að styrkja tengsl samtaka stúdenta og aðildarfélaga BHM munu fulltrúar LÍS hafa aðkomu að fundum formannaráðs BHM a.m.k. tvisvar á ári og munu fulltrúar BHM sömuleiðis hafa aðkomu að fulltrúaráðsfundum LÍS. Þá á LÍS rétt á þátttöku í stefnumótun BHM og bandalagið mun leita til samtakanna um málefni sem BHM hyggst álykta um og varðar stúdenta.

BHM leggur LÍS til skrifstofuhúsnæði líkt og þau hafa gert undanfarin ár. Í fyrsta sinn veita þau samtökunum einnig beinan fjárstuðning sem gerir LÍS kleift að efla hagsmunagæslu sína til muna.

Samningurinn verður endurskoðaður í apríl 2025 en hvor aðili um sig getur óskað eftir endurskoðun á gildistímanum.

BHM og LÍS munu halda áfram að gera sameiginlegt kynnignarefni en nú er í gangi markaðsátak þar sem háskólastúdentum er óskað til hamingju með háskólagráðuna og þeir minntir á mikilvægi góðs stéttarfélags. Öll eru velkomin í BHM.

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Fulltrúaráðsfundur 14. febrúar

Miðvikudaginn 14. febrúar kl 17:00-19:00 verður fundur hjá fulltrúaráði LÍS.

Í fulltrúaráði LÍS sitja 2 fulltrúar frá hverju aðildarfélagi LÍS. Að LÍS standa átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis.

Fulltrúaráðsfundir eru skv. lögum LÍS opnir öllum stúdentum og hvetjum við alla háskólanema með áhuga á hagsmunabaráttu stúdenta að sækja fundina. Að þessu sinni er fundurinn haldinn í Borgartúni 6, 4. hæð. Fulltrúar í fulltrúaráði geta nálgast fundargögn á heimasvæði fundarins.

Athygli er vakin á því að helsta umræðuefni fundarins er kynning á fundargögnum fyrir Landsþing LÍS og því eru allir þingfulltrúar hvattir til þess að mæta.

  1. Fundargerðir síðasta fundar borin upp til samþykktar.

  2. Tillaga að breytingu á starfshlutfalli starfsmanna.

  3. Kynning á nýjum samstarfssamning LÍS og BHM

  4. Kynning á fundargögnum fyrir Landsþing 2024 

  5. Önnur mál

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Opið fyrir framboð í framkvæmdastjórn LÍS 2024-2025!

// English below //

LÍS óska eftir framboði í framkvæmdastjórn LÍS fyrir starfsárið 2024-2025. Framboðsfrestur er til og með 21. febrúar 2024. Hafir þú áhuga skaltu senda kynningarbréf og ferilskrá á kjorstjorn@studentar.is


Kosið er í embætti á Landsþingi stúdenta sem haldið verður í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 7. - 10. mars.

Skipulögð brottför verður frá Höfuðborgarsvæðinu og Akueryri til Hvanneyris seinnipart 7. mars.

Mikilvægar upplýsingar:

Það eru fimm embætti í framkvæmdastjórn LÍS fyrir starfsárið 2024-2025

  • Forseti

  • Varaforseti

  • Gæðastjóri

  • Alþjóðafulltrúi

  • Jafnréttisfulltrúi

Við hvetjum frambjóðendur til þess að kynna sér lög og verklag samtakanna vel, en nánari upplýsingar um hvert embætti má einmitt finna þar. Þú getur líka haft samband við sitjandi embættismenn, en tengiliða upplýsingar má finna hér. Á myndunum að neðan má sjá helstu verkefni hvers stjórnarmanns.

Starfsárið hefst í byrjun júní 2024 og er til lok maí 2025.

Tímabilið frá kosningu embætta á Landsþingi fram að byrjun starfsársins er nýtt til að læra á hlutverkið frá fráfarandi framkvæmdastjórnarmeðlimum samtakanna.

  • Vinnutungumál LÍS er íslenska

    • Efni til birtingar er bæði á ensku og íslensku en fundargögn eru almennt á íslensku

  • Kjörgengi hafa…

    • Öll sem stunda háskólanám á Íslandi og/eða eru meðlimir í aðildarfélagi LÍS

    • Frambjóðendur mega hafa lokið námi, ef það eru innan við tvö ár frá námslokum

// ENGLISH //

Opið fyrir framboð í framkvæmdastjórn LÍS 2023-2024!

Dear students,

LÍS is opening the call for candidates for our Executive Committee for 2024-2025.

The application deadline is 21st of February, if you are interested, please send an introductory letter and CV to kjorstjorn@studentar.is

Elections are held at the Student General Assembly which will be held in Hvanneyri, 7th to 10th of March.

Important information:

There are five positions in the executive board of LÍS for the working year 2024-2025

  • President

  • Vice President

  • Quality officer

  • International officer

  • Equality officer

We encourage candidates to familiarize themselves with the association's laws and procedures, but more detailed information about each position can be found there. You can also contact our current officials, whose contact details can be found here.

The working year starts at the beginning of June 2024 and ends in May 2025.

The period from the election of offices in the National Assembly until the beginning of the working year is used to learn about the role from the outgoing executive committee.

  • The working language of LÍS is Icelandic

    • Material for publication is in both English and Icelandic, but meeting documents are generally in Icelandic

  • Who can apply for the EC?

    • Everyone who is studying at an Icelandic university and/or is a member of LÍS's member associations.

    • Candidates may have completed their studies, if it is less than two years since the end of their studies

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Opið fyrir umsóknir í alþjóðanefnd LÍS

Hvað er alþjóðanefnd?

Alþjóðanefnd LÍS sinnir alþjóðlegum skuldbindingum LÍS, sækir fróðleik til alþjóðlegra stúdenta og færir þann fróðleik heim til Íslands. Nefndin sinnir undirbúningsvinnu og úrvinnslu í kringum alþjóðlega viðburði sem fulltrúar LÍS sækja, þá einna helst á vegum Evrópusamtaka stúdenta (ESU), ásamt því að endurskoða alþjóðastefnu LÍS. Með þátttöku í nefndinni munu meðlimir fá innsýn inn í starf LÍS og ekki síður inn í störf alþjóðlegra stúdentahreyfinga en nefndin sér um að kynna sér og vekja athygli á tækifærum til þátttöku stúdenta í alþjóðlegu stúdentasamstarfi. Nefndin mun í sameiningu móta starf vetrarins undir handleiðslu alþjóðafulltrúa. Laus sæti í nefndinni eru fjögur og leitumst við eftir fjölbreyttum hópi af áhugasömu fólki. Hvers kyns reynsla eða þekking á alþjóðlegri umhverfi er kostur en alls ekki krafa, einungis brennandi áhugi á því að læra nýja hluti!

Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Þóru Margréti Karlsdóttur, alþjóðafulltrúa LÍS. Netfang: thora@studentar.is.

Hæfniskröfur

  • Að umsækjandi sé í háskólanámi eða að ekki sé meira en ár liðið frá því að hann var stúdent.

  • Vilji til þess að fylgja stefnumálum og verklagi LÍS.

  • Vilji til þess að vinna með öðrum nefndarmeðlimum og til þess að leggja sitt af mörkum

  • Reynsla af starfi innan stúdentahreyfinga háskólanna er æskileg. Reynsla af félagsstarfi utan háskólanna er líka æskileg.

Hvernig sæki ég um?

Opið er fyrir umsóknir frá 27. janúar til og með 3. febrúar. Í umsókn skal koma fram: Nafn, menntun, reynsla af félagsstörfum og/eða önnur reynsla sem gæti nýst og stutt lýsing á ástæðu umsóknar. Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um þær lausu stöður sem í boði eru. Umsóknir berast á varaforseti@studentar.is.

Hvað eru LÍS?

Landssamtök íslenskra stúdenta, eða LÍS, voru stofnuð 3. nóvember 2013 og eru samtök háskólanema á Íslandi sem og íslenskra háskólanema á erlendri grundu. LÍS eru regnhlífarsamtök og standa að þeim átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis. LÍS er því í forsvari fyrir rúmlega 20 þúsund íslenskra stúdenta.

Lesa má meira um samtökin hér

Þóra að Alexandra á ráðstefnu erlendis.

Umsóknir og upplýsingar má fá hjá S. Magga Snorrasyni varaforseta samtakanna með því að senda tölvupóst á varaforseti@studentar.is

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Fulltrúaráðsfundur 29. janúar

Mánudaginn 29. janúar kl 17:00 verður fundur hjá fulltrúaráði LÍS.

Í fulltrúaráði LÍS sitja 2 fulltrúar frá hverju aðildarfélagi LÍS. Að LÍS standa átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis.

Fulltrúaráðsfundir eru skv. lögum LÍS opnir öllum stúdentum og hvetjum við alla háskólanema með áhuga á hagsmunabaráttu stúdenta að sækja fundina. Að þessu sinni er fundurinn haldinn í Listaháskóla Íslands, Skipholti 31. Fjórða hæð, fræðastofa 3. Fulltrúar í fulltrúaráði geta nálgast fundargögn á heimasvæði fundarins.

Dagskrá fundarins:

  1. Fundargerð síðasta fundar (17:00-17:05)

  2. Fréttir (17:05-17:25)

  3. Skýrsla um Endurskoðun á Menntasjóði námsmanna og áherslur stúdenta við gerð frumvarps (17:25-17:40)

  4. Skipun kjörstjórnar (17:40-17:45)

  5. Stéttarfélagið Viska (17:45-18:15)

  6. Starfsáætlanir framkvæmdastjórnarfulltrúa (18:15- 18:40)

    Matarhlé

  7. Landssamband Ungmennafélaga (19:10-19:35)

  8. Sameiningarviðræður Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst (19:35-19:50)

  9. Landsþing 2024 (19:50-20:00)

  10. Önnur mál (20:00-20:15)

Read More