Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Spennandi tækifæri fyrir doktorsnema: Úttektarnefnd á vegum Gæðamats háskóla // Exciting Opportunity for Doctoral Students: IAQA Review Panel Participation

LÍS auglýsa eftir doktorsnema og nýlega útskrifuðum til að taka þátt í úttektarnefnd sem meta mun umsóknir háskóla um heimild til að veita doktorsgráður.

LÍS are seeking a doctoral student or a recent graduate to participate in a review Panel evaluating applications for authorisation of a university to award doctoral degrees.

LÍS auglýsa eftir doktorsnema til að taka þátt í úttektarnefnd sem meta mun umsóknir háskóla um heimild til að veita doktorsgráður.

LÍS are seeking a doctoral student to participate in a review Panel evaluating applications for authorisation of a university to award doctoral degrees.

(ENGLISH BELOW)

LÍS barst þessi beiðni frá Gæðamati háskóla. LÍS mun velja tvo einstaklinga af ólíku kyni til að tilnefna í úttektarnefndina, en á endanum er það ákvörðun Gæðamats háskóla hver verður ráðinn og verður aðeins einn umsækjandi valinn.

Mikilvægar upplýsingar og dagsetningar:

  • Úttektarheimsókn fer fram á staðnum í viðkomandi háskóla 29. - 31. október.

  • Undirbúingur fer fram í gegnum tvo fjarfundi:

    • 23. september kl. 9:00-12:00

    • 14. október kl. 9:00-12:00

  • Meðlimir í úttektarnefnd fá greitt kr. 200.000 ISK fyrir vinnuna.

  • Umsóknarfrestur er til og með 13. september.

Sækið um með því að senda bæði ferilskrá og kynningarbréf á gaedastjori@studentar.is.

Skilyrði:

  • Doktorneminn skal vera laus allan daginn þá daga sem úttektin fer fram.

  • Doktorsneminn má ekki stunda nám við eða hafa náin tengsl við háskólann sem úttektin verður gerð á. Við getum veitt upplýsingar um hvaða háskóla um ræðir í tölvupósti, gaedastjori@studentar.is

  • Úttektarnefndin þarf að staðfesta með því að undirrita samning að engir hagsmunaárekstrar séu til staðar.

  • Einstaklingurinn má hafa útskrifast úr doktorsnámi en þá ekki fyrir meira en einu ári.

  • Einstaklingurinn skal vera vel talandi og skrifandi á ensku.

  • Einstaklingurinn skal hafa reynslu af því að vera stúdent í íslenskum háskóla.

Umsóknum og spurningum skal beina að gæðastjóra LÍS, Lilju Margréti, á gaedastjori@studentar.is.

//

LÍS are seeking a doctoral student to participate in a review Panel evaluating applications for authorisation of a university to award doctoral degrees.

LÍS received this request from the Icelandic Agency for Quality Assurance (IAQA). LÍS will select two individuals of different genders to nominate for the review Panel, but in the end IAQA will decide who will be hired and only one applicant will be selected.

Important information and dates:

  • The review will take place at the site of the university on the 29th - 31st of October.

  • Two online preparation meetings will be held:

    • September 23rd at 09:00 - 12:00

    • October 14th at 09:00 - 12:00

  • Panel members receive a payment of 200.000 ISK for their work.

  • The application deadline is September 13th.

  • Apply by sending both your CV and a cover letter to LÍS’ Quality Officer Lilja Margrét Óskarsdóttir via gaedastjori@studentar.is.

Requirements:

  • The doctoral student must be available all day on the days of the review.

  • The doctoral student may not study at, or have close ties with, the university in question. If you are interested in applying, email our Quality Officer via gaedastjori@studentar.is and we can give you more information on which university is being reviewed.

  • The review panel will need to sign a declaration of interest to confirm that there is no conflict of interest.

  • The individual may have graduated from doctoral studies, but no more than one year ago.

  • The individual must be fluent in spoken and written English.

  • The individual must have experience of being a student at an Icelandic university.

Please send any questions and/or applications to LÍS’ Quality Officer, Lilja Margrét, at gaedastjori@studentar.is.

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Landssamtök íslenskra stúdenta leita að framkvæmdastjóra // The National Union of Icelandic Students seeks a new Executive Director

// English below //

Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) eru regnhlífarsamtök allra háskólanema á Íslandi sem og íslenskra háskólanema á erlendri grundu. Hlutverk samtakanna er að standa vörð um hagsmuni stúdenta hérlendis sem og hagsmuni íslenskra stúdenta á alþjóðavettvangi og um leið skapa samstarfsvettvang fyrir íslensk stúdentafélög. Samtökin halda utan um verkefni af ýmsum toga sem eiga það sameiginlegt að bæta hagsmuni stúdenta og tryggja jafnrétti til náms.

Samkvæmt lögum LÍS sinnir framkvæmdastjóri daglegum rekstri og hefur yfirumsjón með fjármálum samtakanna.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með fjármálum samtakanna

  • Gerð fjárhagsáætlunar og ársreiknings

  • Umsjón með vefsíðu samtakanna

  • Hefur samningsumboð fyrir hönd samtakanna og sækir um styrki

  • Heldur utan um framkvæmd viðburða

Hæfniskröfur: 

  • Þekking og reynsla af fjármálum og bókhaldi er skilyrði

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur 

  • Góð samskiptahæfni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð

  • Áhugi og þekking á hagsmunabaráttu stúdenta er æskileg

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku 

  • Önnur þekking og reynsla sem nýtist í starfi

Framkvæmdastjóri verður ráðinn í 80% starf til og með 1. júní 2025 og hefur vinnuaðstöðu á skrifstofu LÍS í Borgartúni 27, 105 Reykjavík. 

Spurningum um starfið er hægt að beina til forseta LÍS:
Lísa Margrét Gunnarsdóttir, lisa@studentar.is, s. 863-2249.

Umsókn sendist á netfang samtakanna lis@studentar.is með kynningarbréfi auk ferilskrár. Umsóknarfrestur er til 23:59 miðvikudaginn 11. september.

//

The National Union of Icelandic Students seeks a new Executive Director

The National Union of Icelandic Students is the umbrella organisation for student unions at all universities in Iceland as well as the association of Icelandic students studying abroad. The union’s role is to safeguard student rights both in Iceland and regarding Icelandic students abroad. The organisation manages projects of various kinds, all of which revolve around advocating for student rights.

According to LÍS’s regulations, the executive director handles day-to-day operations and oversees the association’s finances. 

Main tasks and responsibilities:

  • Overseeing the association’s finances 

  • Preparation of the organisation’s annual report and budget plan

  • Overseeing the organisation’s website

  • Managing contracts and communication with various stakeholders

  • Event management

Qualification

  • Knowledge and experience of finance and accounting

  • An education that is useful in the job is an advantage

  • Good communication skills as well as independent and disciplined work methods

  • Interest and knowledge about student rights

  • Good knowledge of Icelandic and English

  • Other knowledge and experience that might prove useful to the job

The Executive Director will be hired for a 80% position until the 1st of June 2025 and will be situated in LÍS’s headquarters in Borgartún 27, 105 Reykjavík.

Any questions shall be directed to LÍS’s president Lísa Margrét Gunnarsdóttir, lisa@studentar.is, phone number: +354 863 2249.

Applications shall be sent to lis@studentar.is along with an introduction letter and CV. Applications are open until 11:59 PM on Wednesday, September 11th.

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Fulltrúaráðsfundur LÍS 15. ágúst

Fimmtudaginn 15. ágúst kl. 17:00-18:30 verður fundur hjá fulltrúaráði LÍS.

Í fulltrúaráði LÍS sitja 2 fulltrúar frá hverju aðildarfélagi LÍS. Að LÍS standa átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis.

Fulltrúaráðsfundir eru skv. lögum LÍS opnir öllum stúdentum og hvetjum við alla háskólanema með áhuga á hagsmunabaráttu stúdenta að sækja fundina. Að þessu sinni er fundurinn haldinn í Borgartúni 6., fjórðu hæð. Fulltrúar í fulltrúaráði geta nálgast fundargögn á heimasvæði fundarins.

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Opið fyrir umsóknir í fulltrúa LÍS í áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema

Landssamtök íslenskra stúdenta auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum til þess að sitja sem fulltrúar LÍS í áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema. 

Nefndin starfar samkvæmt 20. gr. laga um háskóla nr. 63/2006 og reglum nr. 1152/2006. Hún fjallar um kærur og kvartanir stúdenta í háskólum á hendur skólanna vegna málsmeðferðar og/eða ákvarðana um þeirra mál. 

Sótt er um með því að senda umsókn á lis@studentar.is. Umsóknarfrestur rennur út þann 7. ágúst kl. 23:59.

Umsókn skal innihalda helstu upplýsingar, m.a.: 

  • Nafn og aldur.

  • Ferilskrá.

  • Stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Menntunar- og hæfniskröfur eru eftirfarandi:

  • Umsækjendur þurfa að uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara sbr. 29. gr. laga nr. 50/2016.

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu. 

  • Gott vald á íslenskri tungu.

  • Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. 

  • Lipurð í mannlegum samskiptum. 

Æskilegt er að umsækjandi hafi:

  • Reynslu af störfum kæru- og/eða úrskurðarnefnda.

  • Þekking á lagaumhverfi háskóla.

  • Reynslu af og/eða áhuga á hagsmunabaráttu stúdenta. 

Einn aðal- og einn varafulltrúi eru skipaðir til tveggja ára. 

Lesa má nánar um störf nefndarinnar hér á heimasíðu Stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti LÍS á lisa@studentar.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

LÍS og Viska í samstarf

Viska, stéttarfélag sérfræðinga, og Landssamtök íslenskra stúdenta hafa undirritað samstarfssamning. Viska er nýtt stéttarfélag sérfræðinga sem lætur málefni háskólasamfélagsins sig varða og leggur áherslu á fræðslu og þjónustu fyrir háskólanema. Félagið hyggst eiga virkt samtal við hagsmunasamtök íslenskra háskóla á landsvísu og taka þátt í hagsmunabaráttu háskólanema.

Í janúar undirrituðu Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku og Alexandra Ýr van Erven forseti LÍS samstarfssamning sem hefur það að markmiði að efla þekkingu háskólanema á kjara- og réttindamálum á vinnumarkaði og vinna saman að stefnumótun um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál.

Starfsfólk Visku og fulltrúar LÍS munu vinna að nánari útfærslu á samstarfinu með það að markmiði að fræðsla og námskeið verði komin í fullan gang í haust. Í framhaldinu verður skoðað hvernig hægt er fjölga leiðum til að styrkja stöðu háskólanema á vinnumarkaði og vinna að undirbúningi fyrir lífið á vinnumarkaði. Kjara- og réttindamál ungs fólks og fyrstu skref á nýjum vinnustað verða meginatriðin í þeirri vinnu.

Það er mikið fagnaðarefni að Viska skuli vilja styðja við bakið á LÍS og þar með efla hagsmunabaráttu stúdenta á landsvísu. Fyrir liggur samningur við BHM og með þessum nýja samningi bætist enn frekari stuðningur við LÍS og samvinna stúdenta- og verkalýðshreyfingarinnar þéttist sagði Alexandra Ýr van Erven forseti LÍS.

Alexandra Ýr, forseti LÍS, og Brynhildur Heiðars- og Ómarsdóttir, formaður Visku, við undirritun samningsins.

Read More