Árangur eða afturför? Hádegisfundur um nýja greiningu LÍS og BHM þann 7. maí

Landssamtök íslenskra stúdenta og BHM boða til hádegisfundar um íslenskt námslánakerfi og námsstuðning Menntasjóðs námsmanna.

Á fundinum verða kynntar niðurstöður nýrrar rannsóknar á námslánakerfinu og áhrif breytinganna sem gerðar voru á kerfinu árið 2020.

Nanna Hermannsdóttir, hagfræðingur og höfundur greiningarinnar, kynnir niðurstöðurnar.
Gestur fundarins verður Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Árið 2020 tók Menntasjóður námsmanna (MSNM) við af Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) og var meginmarkmið hins nýja námslánakerfis að tryggja hagsmuni námsmanna á Íslandi betur en áður hafði verið gert. Kerfið átti að verða mikil kjarabót fyrir stúdenta þar sem boðið var upp á 30% námsstyrk. Minna var fjallað um að á móti komu margfalt hærri vextir og sveigjanleiki í námi var takmarkaður.

Nú hafa fyrstu greiðendur hafið endurgreiðslur lána sinna og lögbundin heildarendurskoðun laganna er á dagskrá í ráðuneytinu. Af því tilefni ákváðu Lífeyris- og lánanefnd BHM og Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) að ráðast í greiningu á áhrifum nýja námslánakerfisins og var Nanna Hermannsdóttir hagfræðingur fengin til verksins.

Á fundinum verður kynnt greining á afleiðingum þeirra breytinga sem fólust í lögum um Menntasjóð námsmanna frá árinu 2020. Í greiningunni er meðal annars fjallað um hvers vegna markmið laganna, svo sem styttri námstími, jafnari stuðningur og minni atvinnuþátttaka meðfram námi, hafa ekki gengið eftir auk þess sem ljósi verður varpað á hvernig ákveðnar breytingar vinna beinlínis gegn markmiðum sjóðsins sem félagslegs jöfnunarsjóðs. Þá verður sérstaklega farið yfir breytingu á eðli og umfangi námsstuðnings hins opinbera í samanburði við eldra kerfi auk samanburðar við námslánakerfi hinna Norðurlandanna.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal Visku í Borgartúni 27, 3. hæð, kl. 12:00 - 13:30 þann 7. maí.

Next
Next

Krefjast samráðs og að hagsmunir nemenda HR séu tryggðir við framkvæmdir Borgarlínu