Háskóli Íslands

Háskóli Íslands er staðsettur í Reykjavík og starfar á ýmsum sviðum. Hann er stærsti háskóli landsins og býður upp á umfangsmikið námsframboð.

Vefslóð: hi.is

Hafa samband

Sími: 525 4000

Netfang: hi@hi.is

Hver háskóli hefur svarað spurningarlista um hin ýmsu aðgengismál. Spurningalistinn er í 7 köflum: aðgengi, námið, próftaka, starfsemi, húsnæðismál, réttindi nemenda og jafnrétti og fræðsla. Hér fyrir neðan má sjá svör og einkunnargjöf fyrir Háskóla Íslands.

Einkunn

Hér að neðan má finna sérsatakar upplýsingar um nemendaráðgjöf og ráð Háskóla Íslands um málefni fatlaðs fólks.

  • Heimasíða: https://www.hi.is/nemendaradgjof

    Netfang: radgjof@hi.is

    Símanúmer: 525 4315

    Hlutverk starfsfólks NHÍ er að veita nemendum skólans stuðning og þjónustu meðan á námi stendur, þ.e. námsráðgjöf, starfsráðgjöf, ráðgjöf um úrræði í námi og prófum og sálfræðiþjónustu. Við framkvæmd og mótun þjónustunnar er tekið mið af stefnu Háskóla Íslands 2021-2026 (HÍ26).

    Sé nemandi með erindi varðandi úrræði í námi og prófum skal það sendast á urraedi@hi.is Óski nemandi eftir viðtali hjá sálfræðingum HÍ skal sú beiðni sendast á salfraedingar@hi.is

  • Háskóli Íslands er með ráð sem kallast Ráð um málefni fatlaðs fólks. Ráðið fundar einu sinni í mánuði um málefni sem tengjast fötluðum nemendum.

    Jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands er formaður ráðsins og hægt er að leita til ráðsins með mál sem snúast að málefnum fatlaðra, hvort sem að um ræðir nemendur eða einstaklinga sem að sækja viðburði Háskóla Íslands í gegnum rumff@hi.is

    Hlutverk ráðs um málefni fatlaðs fólks er meðal annars að hafa yfirumsjón með málefnum fatlaðs fólks og nemenda með sértæka námsörðugleika, að undirbúa og fylgja eftir áætlunum um framkvæmd á stefnu háskólans í málefnum fatlaðra, að veita ráðgjöf við hönnun nýbygginga og fylgja eftir að aðgengi á háskólasvæðinu sé í samræmi við stefnum um málefni fatlaðra og margt fleira.

    Ráðið er í nánu samstarfi við Nemendaráðgjöf og byggingastjóra Háskóla Íslands. Ráð um málefni fatlaðs fólk er skipað af fimm einstaklingum tengdum háskólanum. Ráðið skipa til 30. júní 2025:

    ● Sveinn Guðmundsson, jafnréttisfulltrúi, formaður, skipaður án tilnefningar

    ● Hanna Björg Sigurjónsdóttir, prófessor í fötlunarfræðum í Félags- og mannvísindadeild, tilnefnd af Félagi háskólakennara og Félagi prófessora (Varamaður: Stefan Hardonk dósent)

    ● Jón Sigurður Pétursson, Verkefnisstjóri, byggingastjóri Háskóla Íslands, tilnefndur af framkvæmda- og tæknisviði

    ● Þrúður Kristjánsdóttir, félagsráðgjafi, tilnefnd af náms- og starfsráðgjöf

    ● Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, tilnefnd af Stúdentaráði

    ● Styrmir Hallsson, tilnefndur af Stúdentaráði.

Þetta verkefni er styrkt af ÖBÍ réttindasamtökum og kemur frá verkefninu Réttinda Ronja

Spurning Svarið
Er hjólastólaaðgengi inn og út úr öllum byggingum skólans?
Er almennt hjólastólaaðgengi innan bygginga skólans? Já með örfáum undantekningum
Er jafnt og þétt undirlag án hæðarmunar á skólasvæðinu? (Stígar ekki úr möl, hellur óbrotnar, auðvelt að komast upp á gangstéttir og í gegnum dyr, hæðamunur ekki meiri en 2,5cm)
Er skólinn í einni innangengri byggingu? Nei
Eru breiðar dyr og hurðir fyrir hjólastóla, sem einnig er auðvelt að opna á skólasvæðinu?
Eru breiðir gangar og snúningsstaðir fyrir hreyfihamlaða? Langoftast
Eru innréttingar og búnaðir í réttri hæð fyrir hjólastólanotendur? Ekki allstaðar
Eru lyftur fyrir hreyfihamlaða til þess að komast á milli hæða?
Geta allir notað lyfturnar í skólanum án lykils? Já nema í Háskólabíó
Eru klósett fyrir hreyfihamlaða í öllum byggingum skólans?
Eru blá bílastæði nálægt aðalinngangi bygginga?
Er reglulegur snjómokstur á göngustígum á skólasvæðiu?
Eru handrið báðum megin í stigum? Ekki öllum
Eru staðir þar sem hægt er að setjast niður og hvíla sig fyrir fatlaða nemendur eða aðra sem þurfa? Sæti og sófar eru út um allt en ekki enn er búið að koma upp hvíldarherbergjum
Eru herbergi til að hvíla sig fyrir fatlaða nemendur eða aðra sem þurfa? Nei en verið er að óska eftir slíku
Uppfylla rampar ákvæði byggingar-reglugerðar um halla? Flestir en ekki allir
Er kort af byggingu skólans á heimasíðu skólans?
Er hægt að skoða kort af skólanum á netinu þar sem sjá má aðgengi fyrir fólk sem notar hjálpartæki? Nei en vinna er í gangi við að útbúa slík kort
Eru línur í gólfum fyrir blindrastafi? Já á mörgum stöðum en ekki öllum
Eru stofur merktar með blindraletri? Víða
Er eiithvað annað tengt aðgengi sem skólinn býður upp á? Úrræðateymi NHÍ, Aðgengissetrið, Ráð um málefni fatlaðs fólks, Jafnréttisfulltrúi, leiðarlínur utanhúss
Spurning Svarið
Eru nemendur látnir vita með tölvupósti í upphafi hverrar annar hvar skal fá upplýsingar um stuðning í námi?
Hafa allir nemendur greiðan aðgang að skrifstofu náms- og starfsráðgjafa?
Geta nemendur nálgast glærur kennara á netinu? Fer eftir kennsluháttum einstakra kennara en oftast
Geta nemendur nálgast hljóðupptökur af kennslustundum skólans? Fer eftir kennsluháttum einstakra kennara en oftast
Geta nemendur nálgast myndbandsupptökur af kennslustundum skólans? Fer eftir kennsluháttum einstakra kennara en oftast
Geta nemendur fengið glósu-vin? Glósuvinur er annar nemandi sem skrifar niður það sem er sagt í kennslustund Já, nemendur sem uppfylla ákveðin skilyrði
Geta nemendur fengið glósur á blindraletri? Já, Sjónstöðin sér um að aðlaga námsefni að þörfum nemenda
Er hægt að fá bækur á stafrænu formi fyrir tölvu-þul, svo hægt sé að láta tölvu lesa upp náms-bækur?
Eru góðir stólar í öllum kennslustofum? Nei
Eru borð fyrir nemendur í öllum kennslustofum (s.s. ekki bara stólar með felliborðum)? Nei
Geta nemendur fengið borð sem hægt er að hækka og lækka? Í einhverjum tilfellum já en ekki sem reglu
Geta nemendur sem eiga erfitt með að lesa fengið að hlusta á allt námsefni og upplýsingar?
Eru myndir notaðar til að útskýra námsefni? Fer eftir kennara
Eru upplýsingar frá skólanum á skýru og einföldu máli? Já það er stefnan
Hafa allir heyrnarskertir einstaklingar aðgengi að öllum námsgreinum skólans?
Geta heyrnarskertir nemendur fengið tónmöskva í kennslustundum?
Eru tölvur með sérhæfðum búnaði fyrir blinda og sjónskerta til staðar í skólanum?
Spurning Svarið
Geta nemendur sem þurfa af einhverjum ástæðum að vera utan skóla fengið að taka fjarpróf? Já en það þarf að sækja um slíkt og taka prófið á viðurkenndum prófstað
Hafa nemendur kost á lengri próftíma, sem á því þurfa?
Geta nemendur tekið próf á ensku? Fer eftir kennurum og námsgrein
Geta nemendur óskað eftir að taka próf í rólegum aðstæðum þar sem færri nemendur deila próftökustað?
Geta nemendur sótt um að hafa ritara í prófum? Já ef nemendur eru með samning um sértæk námsúrræði við HÍ
Geta nemendur fengið hvíld innan prófs án skerðingar próftíma? Já ef nemendur eru með samning um sértæk námsúrræði við HÍ
Er í boði að taka öll próf í tölvu? Já ef nemendur eru með samning um sértæk námsúrræði við HÍ
Er í boði að taka próf í tölvu með stafsetningarforriti? Mögulega með sérstöku leyfi kennara (fer líka eftir námsgreinum)
Er í boði að taka öll próf munnlega? Fer eftir kennara, námsgreinum og samningi nema við HÍ
Geta nemendur fengið próf upplesin (t.d. með talgervli)? Já ef nemendur eru með samning um sértæk námsúrræði við HÍ
Geta nemendur fengið próf á blindraletri? Já ef nemendur eru með samning um sértæk námsúrræði við HÍ
Er í boði að fá hljóðeinangrandi eyrnarskjól í prófum?
Eru einhver prófúrræði sem skólinn býður upp á sem ekki hafa komið fram hér að ofan?
Spurning Svarið
Er sálfræðiþjónusta í boði fyrir nemendur innan veggja skólans?
Býður skólinn upp á sálfræðiþjónustu fyrir nemendur þeim að kostnaðarlausu?
Býður skólinn upp á niðurgreidda sálfræðiþjónustu? Nei
Er möguleiki á stuðningsviðtali hjá starfsfólki skólans, t.d. hjá námsráðgjafa?
Getur skólinn boðið upp á táknmálstúlk fyrir nemendur?
Getur skólinn boðið upp á rittúlk fyrir nemendur?
Er prófkvíðanámskeið í boði fyrir nemendur á vegum skólans? Ekki í boði öll skólaár
Er námskeið varðandi námstækni í boði fyrir nemendur á vegum skólans?
Býður skólinn upp á eitthvað umfram það sem hefur komið fram hér að ofan, tengt starfsemi skólans á einn eða annan hátt?
Spurning Svarið
Eru stúdentagarðar í göngufæri við skólann?
Eru stúdentaíbúðir í færi með almenningssamgöngum?
Eru stúdentaíbúðir í færi með einkabíl?
Eru sérútbúnar íbúðir fyrir fatlaða á stúdentagörðum skólans?
Spurning Svarið
Eru upplýsingar um réttindi nemenda aðgengilegar á heimasíðu skólans?
Er ákveðið starfsfólk í skólanum með upplýsingar á færi varðandi rétt nemenda?
Bendir starfsfólk (t.d. náms- og starfsráðgjöf) skólans nemendum á Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks? Ef ástæða er til
Bendir starfsfólk skólans fötluðu fólki á þjónustu sem það getur nálgast hjá Öryrkjabandalaginu og öðrum sambærilegum samtökum? Ef ástæða er til
Heilt yfir, getur skólinn vel sinnt þörfum nemenda með sérþarfir?
Býður skólinn upp á eitthvað umfram það sem komið hefur fram hér að ofan tengt réttindum nemenda á einn eða annan hátt?
Spurning Svarið
Tryggir skólinn reglulega fræðslu til kennara og starfsfólks? Allskonar valkvæð fræðsla er í boði
Er hagsmunafélag í skólanum sem er aðgengilegt öllum?
Er virkt hinseginfélag í skólanum sem er aðgengilegt öllum?
Er virkt jafnréttisfélag sem er aðgengilegt öllum?
Er skólinn með verklagsáætlun ef upp koma ofbeldismál?
Er aðgengileg viðbragðsáætlun vegna ofbeldis á heimasíðu skólans?
Er tilkynningarhnappur vegna ofbeldis á heimasíðu skólans?
Hafa þolendur ofbeldis greiðan aðgang að tilkynna slík mál innan skólans?
Leitar skólinn til utanaðkomandi sérfræðinga er upp koma ofbeldismál?
Er markvisst unnið gegn kynbundnu ofbeldi innan skólans?
Fá kennarar kynfræðslu í skólanum? Nei
Fá kennarar kynjafræðslu í skólanum? Það eru valkvæð námskeið í boði og á önninni á að bjóða upp á fleiri
Fá kennarar hinseginfræðslu í skólanum? Já. Slík fræðsla fer í gang á önninni
Er kynjalaus klósett aðstaða? Næstum því öllum byggingum