Elsa Drífudóttir Elsa Drífudóttir

Bandalag háskólamanna styður LÍS í kröfum um hærri framfærslu og frítekjumark hjá LÍN

Bandalag háskólamanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er undir kröfur stúdenta um betri Lánasjóð íslenskra námsmanna.

Logo-BHM.JPG

Bandalag háskólamanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er undir kröfur stúdenta um betri Lánasjóð íslenskra námsmanna.


Yfirlýsingin hljóðar svo:

Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) hafa réttilega bent á að framfærslulán Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) duga ekki til framfærslu hér á landi. Námsmaður í leigu- eða eigin húsnæði fær nú að hámarki um 184 þúsund krónur í framfærslulán á mánuði. Sjóðurinn veitir slík lán aðeins í níu mánuði á ári og er gert ráð fyrir að námsmenn brúi bilið milli ófullnægjandi lána og raunverulegs framfærslukostnaðar með vinnu í þrjá mánuði. Hins vegar eru möguleikar námsmanna til að gera slíkt afar takmarkaðir því frítekjumark sjóðsins er lágt, aðeins 930 þúsund krónur fyrir skatt. Séu tekjur umfram þetta mark skerðast lánin. LÍS hafa því krafist þess að bæði framfærslulánin og frítekjumarkið verði hækkuð.

BHM lýsir yfir fullum stuðningi við þessar sanngjörnu og réttmætu kröfur LÍS.


LÍS þakka fyrir mikilvægan stuðning í baráttunni fyrir bættum kjörum stúdenta.

Read More
Elsa Drífudóttir Elsa Drífudóttir

Loftslagsverkfall

LÍS, Landssamtök íslenskra stúdenta, ásamt SÍF, Sambandi íslenskra framhaldsskólanema og Ungir umhverfissinnar efna til loftslagsverkfalls. Verkfallið mun eiga sér stað á Austurvelli næsta föstudag, þann 22. febrúar – og alla næstu föstudaga – á milli klukkan 12–13.

LÍS, Landssamtök íslenskra stúdenta, ásamt SÍF, Sambandi íslenskra framhaldsskólanema og Ungir umhverfissinnar efna til loftslagsverkfalls. Verkfallið mun eiga sér stað á Austurvelli næsta föstudag, þann 22. febrúar – og alla næstu föstudaga – á milli klukkan 12–13.

climate.jpg

Verkfallið er innblásið af hinni sænsku Gretu Thunberg, en skólaverkfall hennar hefur vakið mikla athygli. Nú þegar hafa tugþúsundir ungmenna farið að hennar fordæmi og flykkst út á götur til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda í baráttunni við loftslagsbreytingar, m.a. í Belgíu, Bretlandi, Bandaríkjunum, Ástralíu, Þýskalandi og Svíþjóð.

Nýjustu tölur Gallup sýna að fleiri Íslendingar en nokkru sinni fyrr hafa áhuga á – og áhyggjur af – umhverfismálum (http://bit.ly/2IuvEp4), en þó fer losun gróðurhúsalofttegunda enn vaxandi. Við viljum sýna stjórnvöldum að almenningur sé meðvitaður um alvarleika málsins og vilji rótttækar aðgerðir.

Stjórnvöld hafa sett sér aðgerðaráætlun í loftslagsmálum til ársins 2030 og gera meðal annars ráð fyrir kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Við viljum styðja við bakið á þeim aðgerðum, en betur má ef duga skal. Núverandi aðgerðaáætlun er ekki í samræmi við markmið um að halda hlýnun innan 1,5 gráðu á heimsvísu og við krefjumst aðgerða sem eru líklegar til að skila þeim árangri.

Ljóst er að stórauka þarf fjárframlög til loftslagsaðgerða. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC) reiknast til að verja þurfi 2,5% af heimsframleiðslu til loftslagsmála á ári til ársins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. Núverandi áætlun er upp á 0,05% af þjóðarframleiðslu á ári næstu fimm árin.

Við krefjumst þess að Ísland taki af skarið, hlusti á vísindamenn, lýsi yfir neyðarástandi og láti hið minnsta 2,5% af þjóðarframleiðslu renna beint til loftslagsaðgerða. Þar verður atvinnulífið einnig að axla ábyrgð og til þess verður ákveðin viðhorfsbreyting að eiga sér stað.



Read More
Guest User Guest User

Fyrsti fundur NAIS

Í október 2017 varð til vísir að samstarfsneti á milli LÍS - Landssamtaka íslenskra stúdenta, MFS - Landssamtaka færeyskra stúdenta, Ili ili - Landssamtaka grænlenskra stúdenta og Avalak - Samtaka grænlenskra stúdenta í Danmörku. Þetta var upphafið að NAIS - The North-Atlantic Islands’ Student cooperation.

Í október 2017 varð til vísir að samstarfsneti á milli LÍS - Landssamtaka íslenskra stúdenta, MFS - Landssamtaka færeyskra stúdenta, Ili ili - Landssamtaka grænlenskra stúdenta og Avalak - Samtaka grænlenskra stúdenta í Danmörku. Þetta var upphafið að NAIS - The North-Atlantic Islands’ Student cooperation. Markmið samstarfsins er að einbeita sér að sértækum málefnum og sameiginlegum hagsmunum stúdenta sem fyrrnefnd samtök standa vörð um.

Dagana 24.-28. janúar 2019 fór fram fyrsti formlegi NAIS fundurinn í Reykjavík. Umræðuefni fundarins var gæðamál og var yfirheiti þess ,,Let’s talk about quality’’. LÍS tóku á móti átta alþjóðlegum gestum, fjórum stúdentafulltrúum frá Grænlandi og fjórum frá Danmörku.

Fulltrúar NAIS fundarins fengu innsýn inn í gæðamál íslensks háskólakerfis frá hagaðilum og íslenskum stúdentum. Fulltrúar MFS, Ili ili og Avalak kynntu sömuleiðis hvernig gæðamálum er háttað í þeirra heimalandi og samtökum, og voru aðal hindranir og framtíðarsýn gæðamála ræddar.

LÍS héldu utan um skipulag vinnustofa og var tilgangur þeirra að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir NAIS. Út frá niðurstöðum vinnustofanna var ákveðið að skrifa handbók sem myndi skýra frá uppbyggingu og tilgangi samstarfsnetsins og einnig sameiginlega yfirlýsingu um mikilvægi gæðamála.

Við gerð handbókarinnar var tekin sú ákvörðun að hver samtök þurfi að tilnefna fulltrúa sem mun sitja í stjórn NAIS og sinna ábyrgðarhlutverki fyrir sín samtök innan samstarfsnetsins. Þeir fulltrúar eru skyldugir til þess að funda í gegn um fjarfundarbúnað einu sinni í mánuði og upplýsa aðra meðlimi NAIS um stöðu mála innann sinna samtaka.

Fulltrúar NAIS sem sóttu fundinn 24.-28. janúar 2019.

Fulltrúar NAIS sem sóttu fundinn 24.-28. janúar 2019.

NOM, sem er mikilvægur samskipta- og samráðsvettvangur fyrir landssamtök stúdenta á Norðurlöndunum og í Eystrarsaltsríkjunum, verður næst haldið í apríl í Danmörku og ætla fulltrúar NAIS að halda stöðufund í framhaldi af NOM þar sem handbókin verður samþykkt.

Næsti fundur NAIS mun fara fram í Færeyjum í október 2019. Umræðuefni fundarins verður fjarnám og ætla MFS að standa fyrir vinnustofum um þátttöku stúdenta innan stúdentahreyfinga.

LÍS hlakka til áframhaldandi samstarfs.


Read More
Elsa Drífudóttir Elsa Drífudóttir

Vilt þú vera með? Opið fyrir framboð til framkvæmdastjórnar LÍS

Opnað hefur verið fyrir framboð til embætta framkvæmdastjórnar LÍS fyrir starfsárið 2019-2020. Framboð skulu berast á kjorstjorn@studentar.is fyrir kl 23:50 þann 15. mars n.k.. Framboðum skulu fylgja kynningarbréf og ferilskrá frambjóðenda. Kosningar til framkvæmdastjórnar eiga sér stað á landsþingi LÍS á Háskólanum á Bifröst helgina 29.-31. mars n.k..

Opnað hefur verið fyrir framboð til embætta framkvæmdastjórnar LÍS fyrir starfsárið 2019-2020. Framboð skulu berast á kjorstjorn@studentar.is fyrir kl 23:50 þann 15. mars n.k.. Framboðum skulu fylgja kynningarbréf og ferilskrá frambjóðenda. Kosningar til framkvæmdastjórnar eiga sér stað á landsþingi LÍS á Háskólanum á Bifröst helgina 29.-31. mars n.k..

Lýsing á framkvæmdastjórn og embættum úr lögum LÍS:

18.gr. Skipun framkvæmdastjórnar
Í framkvæmdastjórn sitja formaður, varaformaður, ritari, fjármálastjóri, alþjóðaforseti, gæðastjóri, markaðsstjóri og jafnréttisfulltrúi sem kosnir eru í embætti á landsþingi, sbr. 49. gr. Framkvæmdastjórn sækir umboð sitt til fulltrúaráðs

19.gr. Hlutverk og skyldur framkvæmdastjórnar
Framkvæmdastjórn stjórnar daglegu starfi samtakanna í samræmi við lög þessi, stefnur og samþykktir samtakanna. Þá tekur framkvæmdastjórn að sér önnur tilfallandi verkefni er lúta að hagsmunum stúdenta.

20.gr. Skyldur og réttindi fulltrúa
Fulltrúar í framkvæmdastjórn bera ábyrgð á miðlun upplýsinga til fulltrúaráðs. Við atkvæðagreiðslu á fundum framkvæmdastjórnar hefur hver fulltrúi eitt atkvæði og ræður einfaldur meirihluti atkvæða.

Fulltrúar hafa rétt til setu, málfrelsi og tillögurétt á fundum fulltrúaráðs og landsþingi.


21. gr. Formaður LÍS
Formaður LÍS er formaður framkvæmdastjórnar og fulltrúaráðs LÍS.

Hlutverk formanns er að:

  • Boða framkvæmdastjórnar- og fulltrúaráðsfundi, leggja fram dagskrá og stýra fundum.

  • Koma fram fyrir hönd félagsins og vera málsvari þess á opinberum vettvangi.

  • Vera ábyrgur fyrir miðlun upplýsinga til fulltrúa og varamanna í fulltrúaráði um alla starfsemi LÍS.

  • Gæta jafnt að hagsmunum allra aðildarfélaga og gæta hlutleysis í hvívetna.

 

Formaður hefur ekki atkvæðisrétt á fundum fulltrúaráðs nema að atkvæði falla að jöfnu.
Fulltrúaráð ákvarðar starfs- og launakjör formanns.

 

22. gr. Alþjóðaforseti
Alþjóðaforseti hefur umsjón með alþjóðastarfi, samskiptum við stúdentasamtök annarra landa og regnhlífasamtök stúdenta í Evrópu og víðar. Alþjóðaforseti er ábyrgður fyrir og sér um þátttöku íslenskra stúdenta á alþjóðlegum fundum og ráðstefnum. Alþjóðaforseti skal upplýsa fulltrúaráð og framkvæmdastjórn um alþjóðastarf samtakanna. Alþjóðaforseti skal  gæta þess að alþjóðastefnu samtakanna sé fylgt. Alþjóðaforseti er yfir alþjóðanefnd.

 

23. gr. Gæðastjóri
Gæðastjóri ber ábyrgð á því að þekking innan samtakanna á gæðamálum sé fullnægjandi. Þá er hlutverk gæðastjóra að efla þekkingu og áhuga hins almenna háskólanema á gæðamálum. Gæðastjóri er tengiliður Gæðaráðs íslenskra háskóla við samtökin. Gæðastjóri skal gæta þess að gæðastefnu samtakanna sé fylgt. Gæðastjóri er yfir gæðanefnd.

 

24.gr .Varaformaður
Varaformaður skal sinna formennsku í fjarveru formanns. Varaformaður skal aðstoða formann við gerð fundardagskrár. Varaformaður hefur yfirumsjón með lagabreytingum samtakanna og fer fyrir lagabreytingarnefnd. Lagabreytinganefnd skal endurskoða lög samtakanna ár hvert.

 

25.gr. Fjármálastjóri
Fjármálastjóri skal hafa yfirumsjón með fjármálum samtakanna. Fjármálastjóri ber ábyrgð á því að greiða þau gjöld er samtökunum ber að greiða og innheimta kröfur. Fjármálastjóri skal sjá um gerð fjárhagsáætlunar í upphafi starfsárs og leggja fyrir fulltrúaráð til samþykktar. Fjármálastjóri hefur prókúru fyrir reikningum samtakanna. Fjármálastjóri skal sjá til þess að ársreikningur sé gerður, kynna hann á landsþingi og bera hann upp til samþykktar. Fjármálastjóri er ábyrgur fyrir fjáröflun og hefur umsjón með gerð styrktar- og viðskiptasamninga. Fjármálastjóri er yfir fjármálanefnd.

 

26.gr. Ritari
Ritari LÍS skal skrá fundargerðir fyrir hvern framkvæmdastjórnarfund, á vinnudögum og vinnuþingum stjórnar. Ritari skal halda utan um mætingu stjórnarmanna á fundi og ber ábyrgð á varðveislu og vistun fundargagna samtakanna. Þá hefur ritari jafnframt umsjón með sameiginlegum gögnum samtakanna – að á þeim sé gott skipulag og hægt að finna öll þau gögn er samtökin varða.

 

27.gr. Markaðsstjóri
Markaðsstjóri sér um að koma samtökunum á framfæri og skal semja markaðsáætlun í upphafi starfsárs. Markaðsstjóri skal vekja athygli á LÍS í samfélaginu, þá sérstaklega meðal framhalds- og háskólanema. Markaðsstjóri ber ábyrgð á útgáfu LÍS svo sem á heimasíðu, samfélagsmiðlum og prenti. Markaðsstjóri sér um viðburði sem haldnir eru á vegum samtakanna. Markaðsstjóri er yfir markaðsnefnd.

 

28.gr. Jafnréttisfulltrúi
Jafnréttisfulltrúi skal gæta þess að jafnrétti ríki innan samtakanna. Hann skal leitast við að tryggja öllum stúdentum jafnan rétt, jafna stöðu og leggja ríka áherslu á að allir samfélagsþegnar búi við jafnrétti til náms. Jafnréttisfulltrúi skal sjá til þess að jafnréttisstefnu samtakanna sé fylgt. Jafnréttisfulltrúi er yfir jafnréttisnefnd.

Nánari upplýsingar veitir Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, formaður LÍS á elsa@studentar.is.


Read More
Kamilla Dogg Gudmundsdottir Kamilla Dogg Gudmundsdottir

Betra LÍN strax - stúdentar þurfa líka að lifa af

LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta hafa uppá síðkastið gengið fram í herferð um eitt helsta sameiginlega baráttumál stúdenta: LÍN -  Lánasjóð íslenskra námsmanna. Kröfur stúdenta eru skýrar og ganga út á aukna framfærslu og hækkað frítekjumark.

IMG_0034+2.jpg

LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta hafa uppá síðkastið gengið fram í herferð um eitt helsta sameiginlega baráttumál stúdenta: LÍN -  Lánasjóð íslenskra námsmanna. Kröfur stúdenta eru skýrar og ganga út á aukna framfærslu og hækkað frítekjumark. Þessar kröfur byggja á því að sjóðurinn þjóni sínu upprunalega hlutverki sem félagslegur jöfnunarsjóður sem tryggir jafnt aðgengi að námi óháð efnahag. LÍN þjónar því miður ekki lengur þessu hlutverki og stúdentar hafa fyrir vikið þurft að grípa til annarra ráða við að framfleyta sér.


Stúdentar fá lánað frá LÍN fyrir 96% af reiknaðri framfærsluþörf sinni. Þetta þýðir að stúdent í leigu- eða eigin húsnæði fær um 184 þúsund krónur á mánuði.  Framfærsla stúdenta er tæplega 100 þúsund krónum lægri en grunnatvinnuleysisbætur og um 120 þúsund krónum lægri en lágmarkslaun. Þar sem einungis er lánað fyrir níu mánuðum á ári og ekki fullri framfærslu er gert ráð fyrir því að stúdentar vinni sér til tekna til að brúa bilið og framfleyta sér yfir sumarmánuðina. Þar kemur frítekjumarkið til sögunnar, stúdentar geta þénað 930 þúsund krónur á ári, fyrir skatt, án þess að framfærslulán þeirra skerðist. Fari innkoman hins vegar yfir þá upphæð þá skerðist hver króna sem LÍN lánar um 45% fyrir hverja krónu sem stúdentinn vinnur sér inn umfram frítekjumarkið.


Þetta eru réttmætar kröfur og það er ánægjulegt að heyra að bæði mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir sem og stjórnarformaður LÍN, Eygló Harðardóttir vilji koma til móts við stúdenta. Það sem vonbrigðum veldur er tregi til tryggingar um þessar breytingar. Það er auðvelt að halda aftur af breytingum á þeim grundvelli að ekki sé  svigrúm til hækkana, en það er augljóst á þeim afgangi sem Lánasjóðurinn skilar á ársgrundvelli, sem hleypur á milljörðum að svigrúmið er til staðar og þess vegna er óumflýjanlegt að velta því fyrir sér hvers vegna hinn svokallaði rammi til breytinga þarf að vera jafn þröngur og sagt er. Það er líka augljóst á mikilli hlutfallslegri fækkun lánþega, sem er um þriðjungur á meðan að háskólanemum fækkar um minna en 5%, að stúdentar gera sér grein fyrir því að sjóðurinn starfar ekki lengur í þeirra þágu. Slík tölfræði ætti að valda þeim sem hafa  ákvörðunarvaldið og ábyrgðina áhyggjum.


Það er nauðsynlegt að sjá þessar breytingar ganga fram í dag og stúdentar eru ekki tilbúnir til þess að bíða eftir því að nýtt lánasjóðskerfi líti dagsins ljós. Reynslan hefur ekki verið gjöful hvað breytingar á lögum LÍN varðar og þess vegna er mikilvægt að grípa tækifærið sem nú gefst með nýjum úthlutunarreglum. Það er pólitísk ákvörðun að rétta kjör stúdenta í samræmi við aðra samfélagshópa, eða láta þá áfram sitja eftir með óásættanleg kjör.


LÍS krefjast þess að betra LÍN líti dagsins ljós strax. Stúdentar eiga að mega þrífast en ekki neyðast til þess að þrauka í gegnum námsárin. Þeir eiga að geta bæði lært og lifað á meðan námi stendur. Þegar persónulegur vöxtur, tækifæri til þess að efla kunnáttu, visku og framlag til sívaxandi og fjölbreytilegs samfélags eiga að vera í forgrunni, ekki baráttan við að lifa af.



Þessi grein er hluti af greinaröð herferðar Landssamtaka íslenskra stúdenta um bættan

Lánasjóð íslenskra námsmanna. Berjumst saman fyrir #betraLÍN



Elsa María Guðlaugs Drífudóttir

Formaður LÍS

Read More