Stuðningsyfirlýsing vegna Druslugöngunnar 28. júlí 2018
Í ár fer Druslugangan fram í áttunda skiptið hér á landi. Druslugangan er samstöðuganga sem hefur veitt þolendum hvers kyns áreitni og/eða ofbeldis af kynbundnum eða kynferðislegum toga, sem og aðstandendum þeirra, vettvang til að skila skömminni til þeirra sem bera ábyrgð á brotinu.
Í ár fer Druslugangan fram í áttunda skiptið hér á landi. Druslugangan er samstöðuganga sem hefur veitt þolendum hvers kyns áreitni og/eða ofbeldis af kynbundnum eða kynferðislegum toga, sem og aðstandendum þeirra, vettvang til að skila skömminni til þeirra sem bera ábyrgð á brotinu. Sömuleiðis hefur hún átt stóran þátt í þeirri vitundarvakningu sem hefur átt sér stað undanfarin ár í tengslum við slíka áreitni eða ofbeldi. Druslugangan hefur stuðlað að mikilvægum breytingum í samfélaginu sem LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta fagna. #metoo hreyfingin hefur einnig leitt til mikilla breytinga í samfélaginu og hafa fjölmargar stofnanir, fyrirtæki og stúdentahreyfingar breytt starfsháttum sínum til þess að taka betur á kynbundinni og/eða kynferðislegri áreitni og/eða ofbeldi. Innan sumra háskóla hér á landi hafa verið starfrækt svokölluð fagráð sem gegna því hlutverki að taka til meðferðar mál er varða brot af þessu tagi.
LÍS kalla eftir því að allir háskólar á Íslandi hafi góða og skýra verkferla þegar upp kemur kynbundin og/eða kynferðisleg áreitni og/eða ofbeldi innan sinna stofnanna, með það að markmiði að veita þolendum stuðning og beina máli þeirra í réttan farveg. Enn fremur leggja LÍS áherslu á að upplýsingar um ofangreinda verkferla séu aðgengilegar bæði stúdentum og starfsfólki svo að þolendur geti leitað sér aðstoðar með skjótum og auðveldum hætti. LÍS standa með þolendum.
Declaration of support for the SlutWalk in Reykjavík, Iceland, 28th of July 2018
This year, the SlutWalk will be held for the eighth time in Reykjavík, Iceland. The SlutWalk is a solidarity march which has given survivors of gender related and/or sexual harassment and/or violence, as well as their supporters, a public forum to shift the shame from the survivors over to those responsible for the violence. The march has also played a part in increasing awareness of the above-mentioned violations in recent years. The SlutWalk has had an immense impact on our society which LÍS - The National Union For Icelandic Students applauds. The #metoo movement has likewise had an immense impact on our society and numerous institutions, corporations and student movements have changed their procedures to be able to tackle gender related and/or sexual harassment and/or violence in an appropriate manner. A few universities here in Iceland have appointed so called Professional Councils which receive and investigate complaints regarding violations of this kind.
LÍS urges every university in Iceland to have an effective and clear procedure which can be followed if cases of gender related and/or sexual harassment and/or violence occur in their institutions, with the aim of providing survivors support and directing their case in the right direction. Furthermore, LÍS emphasize that information regarding the above-mentioned procedures must be accessible to both students and staff members, so that survivors can look for help in a swift and easy manner. LÍS stand with survivors.
Fullskipun og fyrsti fundur framkvæmdastjórnar
Kosið var til fjármálastjóra og jafnréttisfulltrúa LÍS á fulltrúaráðsfundi þann 18. júní. Bárust alls fimm framboð og fór það svo að Kristín Þóra Jónsdóttir hlaut kjör til fjármálastjóra og Sonja Björg Jóhannsdóttir til jafnréttisfulltrúa. Framkvæmdastjórn er þar með fullskipuð:
Formaður: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir
Varaformaður: Teitur Erlingsson
Gæðastjóri: Aldís Mjöll Geirsdóttir
Alþjóðaforseti: Salka Sigurðardóttir
Fjármálastjóri: Kristín Þóra Jónsdóttir
Markaðsstjóri: Sandra Rún Jónsdóttir
Jafnréttisfulltrúi: Sonja Björg Jóhannsdóttir
Ritari: Sigrún Jónsdóttir
Fullskipuð framkvæmdastjórn fundaði í fyrsta skipti þann 20. júní, þar sem var meðal annars rætt um aðkomu stúdenta að 100 ára fullveldishátíð Íslands og komandi skref í starfi framkvæmdastjórnar. Góður andi er í hópnum og hlakkar framkvæmdastjórn til þess að takast á við komandi verkefni.
Yfirlýsing LÍS í ljósi endurskipunar í embætti framkvæmdastjóra LÍN
Landssamtök íslenskra stúdenta lýsa yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð mennta- og menningarmálaráðuneytis við endurskipun í embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Leitast skal í hvívetna við að finna og skipa hæfasta einstaklinginn í öll embætti út frá faglegum forsendum, einungis er hægt að tryggja það með því að viðhafa gegnsætt og opið ráðningaferli.
Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, sagði sjálf þegar hún var innt eftir því á landsþingi samtakanna í mars að hennar stefna væri að auglýsa í stöður sem þessar. Gefur það því að skilja að það eru enn frekari vonbrigði, að framkvæmd fylgi ekki orði.
Yfirlýsinguna í heild sinni má nálgast hér.
Framboðsfrestur til fjármálastjóra og jafnréttisfulltrúa framlengdur
Framboðsfrestur til fjármálastjóra og jafnréttisfulltrúa LÍS hefur verið framlengdur um þrjá daga. Framboð skulu berast á kjorstjorn.lis@gmail.com fyrir kl 23:59 þann 5. júní og skal fylgja ferilskrá og nokkur orð um ástæðu framboðs. Kosið verður á fundi fulltrúaráðs LÍS í júní, dagsetning auglýst síðar.
Framboðsfrestur til fjármálastjóra og jafnréttisfulltrúa LÍS hefur verið framlengdur um þrjá daga. Framboð skulu berast á kjorstjorn.lis@gmail.com fyrir kl 23:59 þann 5. júní og skal fylgja ferilskrá og nokkur orð um ástæðu framboðs. Kosið verður á fundi fulltrúaráðs LÍS í júní, dagsetning auglýst síðar.
Fyrir upplýsingar um embætti sjá hér: http://www.haskolanemar.is/frettir-og-greinar/opidfyrirframbod
Nánari upplýsingar veitir Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, formaður LÍS á lis@haskolanemar.is.
Opið er fyrir framboð til fjármálastjóra og jafnréttisfulltrúa
Opið er fyrir framboð til fjármálastjóra og jafnréttisfulltrúa LÍS. Framboð skulu berast á kjorstjorn.lis@gmail.com fyrir kl 23:59 þann 2. júní og skal fylgja ferilskrá og nokkur orð um ástæðu framboðs. Kosið verður á fundi fulltrúaráðs LÍS í júní, dagsetning auglýst síðar.
Opið er fyrir framboð til fjármálastjóra og jafnréttisfulltrúa LÍS. Framboð skulu berast á kjorstjorn.lis@gmail.com fyrir kl 23:59 þann 2. júní og skal fylgja ferilskrá og nokkur orð um ástæðu framboðs. Kosið verður á fundi fulltrúaráðs LÍS í júní, dagsetning auglýst síðar.
Lýsing á hlutverkum úr lögum LÍS:
25. gr. Fjármálastjóri
Fjármálastjóri skal hafa yfirumsjón með fjármálum samtakanna. Fjármálastjóri ber ábyrgð á því að greiða þau gjöld er samtökunum ber að greiða og innheimta kröfur. Fjármálastjóri skal sjá um gerð fjárhagsáætlunar í upphafi starfsárs og leggja fyrir fulltrúaráð til samþykktar. Fjármálastjóri hefur prókúru fyrir reikningum samtakanna. Fjármálastjóri skal sjá til þess að ársreikningur sé gerður, kynna hann á landsþingi og bera hann upp til samþykktar. Fjármálastjóri er ábyrgur fyrir fjáröflun og hefur umsjón með gerð styrktar- og viðskiptasamninga. Fjármálastjóri er yfir fjármálanefnd.
28. gr. Jafnréttisfulltrúi
Jafnréttisfulltrúi skal gæta þess að jafnrétti ríki innan samtakanna. Hann skal leitast við að tryggja öllum stúdentum jafnan rétt, jafna stöðu og leggja ríka áherslu á að allir samfélagsþegnar búi við jafnrétti til náms. Jafnréttisfulltrúi skal sjá til þess að jafnréttisstefnu samtakanna sé fylgt. Jafnréttisfulltrúi er yfir jafnréttisnefnd.
Nánari upplýsingar veitir Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, formaður LÍS á lis@haskolanemar.is.