BM77 á Möltu
Þrír fulltrúar LÍS fóru á dögunum á þingfund Evrópsku stúdenta samtakanna, það er European Student Union Board Meeting, eða ESU BM77 á Möltu. Af viku langri ferð fóru fyrsti og síðasti dagurinn í ferðalag til og frá fundarstaðnum, þess á milli tveir dagar í fræðslu og þrír í sameiginlegan þingfund.
Þrír fulltrúar LÍS fóru á dögunum á þingfund Evrópsku stúdenta samtakanna, það er European Student Union Board Meeting, eða ESU BM77 á Möltu. Af viku langri ferð fóru fyrsti og síðasti dagurinn í ferðalag til og frá fundarstaðnum, þess á milli tveir dagar í fræðslu og þrír í sameiginlegan þingfund.
Viðburðurinn átti sér stað í skugga mikillar ólgu í maltnesku samfélagi en sú ólga hafði áhrif á störf þingsins. Stúdentar á Möltu taka virkan þátt í mótmælaaðgerðum gegn stjórnvöldum í þeirri trú að háskólar, og sér í lagi stúdentar, verði að standa vörð um sín gildi og láta í sér heyra þegar frelsi og lýðræði er ógnað.
Á BM koma fulltrúar landssamtaka stúdenta frá allri Evrópu saman til þess að deila reynslu sinni af hagsmunabaráttu. Sömuleiðis er þingið vettvangur fyrir fulltrúana til þess að sammælast um sameiginleg baráttumál og gildi. Dagana fyrir þingfundinn fræddu landssamtökin hvort annað um hin ýmsu framtök á vegum stúdenta sem snúa að aðgengi, sjálfbærni og mannréttindum. Á þinginu sjálfu settu aðildarfélögin og ESU sín gildi í orð í formi laga, stefna og yfirlýsinga.
Lagabreytingar sem teknar voru fyrir, og sumar samþykktar, sneru flestar að því að gera lögin skýrari og skilvirkari. Tvær mikilvægar stefnur voru endurskoðaðar, endurbættar og að lokum samþykktar. Þar var annars vegar um að ræða stefnu um mannréttindi og samstöðu (e. human rights and solidarity) og hins vegar stefnu um félagslega vídd í gæðamálum (e. social dimension policy). Fjöldi yfirlýsinga voru skrifaðar og þær samþykktar. Þar má helst nefna yfirlýsingu um loftslagsvána og þátt háskólasamfélagsins í að sporna við hlýnun jarðar.
Baráttumál stúdenta eru víðtæk og finnast þau hvarvetna í samfélaginu kjarninn í baráttunni snýst um gæði náms á háskólastigi, þar með talið aðgengi að námi. Ein af þeim yfirlýsingum sem tekin var fyrir á þinginu fól í sér kröfur stúdenta um framtíð Bologna-ferlisins, sem tryggja á gæði háskólanáms í Evrópu. Brýnt er að kerfið taki mið af sjónarmiðum stúdenta ef það á raunverulega að hafa tilætluð áhrif.
ESU berast reglulega umsóknir um aðild, en á þessu þingi sóttu tvö félög um inngöngu. Eitt þeirra, GSOA frá Georgíu, var samþykkt einróma en hinu, LINK frá Ítalíu, var hafnað. Fulltrúar LÍS hafa hins vegar fulla trú á LINK og hafa efnt til samstarfs með þeim. LINK fengu ekki inngöngu á grundvelli tilraunakennds kosningakerfis innan samtakanna og þess að önnur ítölsk samtök eru í ESU. Það þótti fulltrúum LÍS miður enda kosningakerfi LINK áhugaverð leið að lýðræði sem ESU gæti mögulega dregið lærdóm af. LINK standa fyrir stóran hluta ítalskra stúdenta og voru mörg aðildarfélög innan ESU ósátt með framgang annarra aðildarfélaga í garð LINK. Því ákváðu fulltrúar LÍS ásamt fulltrúum landssamtaka írskra stúdenta að samþykkja að vinna með LINK að því að sækja á ný um kandídátsaðild að ESU síðar meir.
Þinginu lauk með því að þingfulltrúar samþykktu yfirlýsingu frá KSU, landssamtaka stúdenta á Möltu, einróma. Yfirlýsingin sneri að ólíðandi framkomu stjórnvalda á Möltu í garð þegna sinna og bar í sér kröfu um tafarlausa afsögn forsætisráðherra Möltu á þeim grundvelli.
Þingfulltrúar LÍS. Frá vinstri til hægri: Jóhanna Ásgeirsdóttir, Ragnhildur Þrastardóttir og Sylvía Lind Jóhannesdóttir
The first application café // Fyrsta umsóknarkaffihúsið
Student Refugees Iceland held their first application cafe at the Nordic House last week. Quite a few people came through to receive information and advice (as well as free coffee!) from volunteers about the university system in Iceland: where, how and when to apply to study….
------------ Íslensk útgáfa neðar ------------
Student Refugees Iceland held their first application cafe at the Nordic House last week. Quite a few people came through to receive information and advice (as well as free coffee!) from volunteers about the university system in Iceland: where, how and when to apply to study. The next application cafe will be on December 18th, same time and location, see facebook event here. Learn more about higher education in Iceland, and the project itself, at www.studentrefugees.is.
--------------- Íslenska ---------------
Í vikunni hélt Student Refugees Iceland sitt fyrsta umsóknarkaffihús í Norræna Húsinu. Þónokkrir gestir komu og þáðu (ásamt ókeypis kaffi!) upplýsingar og ráð um háskólakerfið á Íslandi: hvar, hvernig og hvenær sé hægt að sækja um nám. Næsta umsóknarkaffihús verður 18. desember, á sama tíma og stað, sjá má Facebook viðburðinn hér. Kynnið ykkur æðri menntun á Ísalndi, og verkefnið sjálft, á www.studentrefugees.is
Fundur um stuðningsyfirlýsingu LÍS við bréf jafnréttisnefndar KÍ
Ragnhildur Þrastardóttir, varaforseti LÍS, og Anastasía Jónsdóttir, jafnréttisfulltrúi LÍS, fóru á fund með Jóni Atla, rektor Háskóla Íslands og Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur, forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Fundurinn var boðaður vegna stuðningsyfirlýsingar LÍS við bréf jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands….
Ragnhildur Þrastardóttir, varaforseti LÍS, og Anastasía Jónsdóttir, jafnréttisfulltrúi LÍS, fóru á fund, þann 18. nóvember síðastliðinn, með Jóni Atla, rektor Háskóla Íslands, Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur, forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Steinunni Gestsdóttur, aðstoðarrektor kennslu og þróunar. Fundurinn var boðaður vegna stuðningsyfirlýsingar LÍS við bréf jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands. Í bréfinu birtist krafa nefndarinnar um að kynjafræði verði skyldufag í kennaranámi. Á fundinum skynjuðu fulltrúar LÍS mikinn meðbyr frá Kolbrúnu og Jóni Atla og vilja þeirra til þess að skoða það að bæta kynjafræði við sem skyldufagi í kennaranámi. LÍS eru bjartsýn á framhaldið.
Stuðningsyfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan:
Ragnhildur Þrastardóttir nýr varaforseti LÍS
Á fundi fulltrúaráðs þann 11. nóvember síðastliðinn var Ragnhildur Þrastardóttir kosin varaforseti Landssamtaka íslenskra stúdenta.
Ragnhildur er kunn hagsmunabaráttu stúdenta í gegnum störf sín sem stúdentaráðsliði SHÍ og sem ritstjóri Stúdentablaðsins. Hún útskrifaðist í vor með BA gráðu í bókmenntafræðum og ritlist.
Við óskum henni hjartanlega til hamingju með embættið og hlökkum til þess að starfa með henni í þágu stúdenta.
Á fundi fulltrúaráðs þann 11. nóvember síðastliðinn var Ragnhildur Þrastardóttir kosin varaforseti Landssamtaka íslenskra stúdenta.
Ragnhildur er kunn hagsmunabaráttu stúdenta í gegnum störf sín sem stúdentaráðsliði SHÍ og sem ritstjóri Stúdentablaðsins. Hún útskrifaðist í vor með BA gráðu í bókmenntafræðum og ritlist.
Við óskum henni hjartanlega til hamingju með embættið og hlökkum til þess að starfa með henni í þágu stúdenta.
Opið fyrir umsóknir í markaðsnefnd LÍS 2019-2020 // Open for applications to LÍS's marketing committee 2019-2020
Landssamtök íslenskra stúdenta auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum í markaðsnefnd samtakanna. …
//
The National Union of Icelandic Students (LÍS) is looking for interested personnel for the Union’s marketing committee. …
------------ Scroll down for the English version ------------
HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á MARKAÐSMÁLUM? LANGAR ÞIG TIL AÐ HAFA ÁHRIF? ERT ÞÚ SNILLINGUR Í SAMFÉLAGSMIÐLUM? VILT ÞÚ STARFA MEÐ STÚDENTUM FRÁ ÖLLUM HÁSKÓLUM LANDSINS?
Landssamtök íslenskra stúdenta auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum í markaðsnefnd samtakanna. Í stuttu máli er hlutverk markaðsnefndar að koma LÍS á framfæri í samfélaginu öllu, þó sérstaklega háskólasamfélaginu. Nefndin er kjörin fyrir alla sem vilja spreyta sig í fréttaflutning, vera með umsjón yfir heimasíðu eða skapa markaðsefni fyrir sístækkandi samtök á borð við LÍS. Reynsla af markaðsstörfum er mikill kostur, einnig reynsla af grafík, margmiðlum og ritstörfum. Með þátttöku þinni í markaðsnefnd gefst þér tækifæri til þess að kynnast samtökunum vel og þá sér í lagi fólkinu sem tekur þátt í starfi LÍS.
Athugið að krafa er gerð um að umsækjandi sé í háskólanámi eða að ekki sé meira en ár liðið frá því að umsækjandi var háskólanemi.
Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Guðbjart Karl Reynisson, markaðsstjóra LÍS. Netfang: bjartur@studentar.is
HVERNIG SÆKI ÉG UM?
Opið er fyrir umsóknir frá 8. nóvember til og með 22. nóvember. Sótt er um hér. Í umsókn skal koma fram nafn og tölvupóstfang en í viðhengi skal setja ferilskrá og kynningarbréf. Laus sæti í nefndinni eru fjögur.
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
------------ English ------------
ARE YOU INTERESTED IN MARKETING? DO YOU WANT TO BE INFLUENTIAL? DO YOU HAVE GOOD KNOWLEDGE OF SOCIAL MEDIA? DO YOU WANT TO WORK WITH STUDENTS FROM ALL OVER THE COUNTRY?
The National Union of Icelandic Students (LÍS) is looking for interested personnel for the Union’s marketing committee. In short, the role of the Marketing committee is to be responsible for promoting LÍS in the community as a whole, and especially in the university community. The committee is ideal for anyone who wants to get involved in news coverage, managing a website or creating marketing material for a growing organization such as LÍS. Experience in marketing is a great advantage, as well as experience in graphics, media and writing. Your participation in the marketing committee gives you the opportunity to get to know the organization well and especially the people who participate in the Union´s work.
Note that the applicant should be a university student or has been a university student in the last year.
If you wish for further information you can contact Guðbjartur Karl Reynisson, the Marketing Officer. Email: bjartur@studentar.is
HOW DO I APPLY?
Applications are open from November 8th until November 22th. You can apply here. The application should include your name, email address and you are also required to put in your CV and a short introduction letter. There are four available seats in the committee.
We encourage individuals of all genders to apply.