Auglýst eftir umsóknum í stöðu áheyrnarfulltrúa stúdenta í Gæðaráð íslenskra háskóla // Open for applications for a student observer in the Icelandic Quality Board for Higher Education
Landssamtök Íslenskra stúdenta (LÍS) leita að einstaklingi í stöðu áheyrnarfulltrúa stúdenta í Gæðaráð Íslenskra Háskóla. Gæðaráðið ber ábyrgð á framkvæmd og yfirsýn á rammaáætlun um eflingu gæða á sviði æðri menntunar á íslandi (QEF). Markmið QEF er að efla gæði kennslu og rannsókna í íslenskum háskólum.
Gæðaráð samanstendur af gæðasérfræðingum en LÍS hefur þar tvo fulltrúa, einn stjórnarmeðlim og einn áheyrnarfulltrúa. Hlutverk áheyrnarfulltrúa er að aðstoða erlenda stúdentafulltrúann og tryggja samskipti á milli þeirra og LÍS.
Almennar upplýsingar:
Frestur til að sækja um stöðuna er til og með 15. júlí 2022.
Athuga skal að staðan er ólaunuð en er hinsvegar ómetanleg starfsreynsla.
Áheyrnarfulltrúinn sinnir hlutverkinu frá upphafi ágúst 2022 til mars 2024 eða í tvö ár.
LÍS mun taka viðtöl við umsækjendur og að lokum tilnefna áheyrnarfulltrúa.
Allir fundir Gæðaráðs og skjöl verða á ensku.
Skyldufundir verða haldnir að minnsta kosti fjórum sinnum á ári og stendur hver fundur í um tvo heila daga.
Fundir fara fram á Íslandi en mögulega verða gerðar undantekningar á því.
Áheyrnarfulltrúi og aðalfulltrúi skulu funda með LÍS fyrir og/eða eftir skyldufundi Gæðaráðs.
Umsóknir sendist á lis@studentar.is
Hæfniskröfur:
Umsækjandi þarf að vera innritaður í háskóla eða hafa verið í háskólanámi á síðast liðnum tveimur árum.
Kostur er að umsækjandi hafi reynslu í hagsmunabaráttu stúdenta, gæðamálum eða sambærilegu starfi
Hafa skilning á uppbyggingu háskólakerfisins.
Góð enskukunnátta.
Góð færni í mannlegum samskiptum og vinnur vel í hóp.
Sveigjanleiki til að tryggja mætingu á fundi.
Áhugasamir geta sótt um með því að senda umsókn á lis@studentar.is
Með umsókninni skal fylgja:
Kynningarbréf.
Ferilskrá, þar sem öll reynsla tengd stöðunni er upptalin.
LÍS og Gæðaráð íslenskra háskóla óska eftir stúdentafulltrúa í stofnanaúttekt á Landbúnaðarháskóla Íslands
English Below
LÍS hefur borist beiðni um að tilnefna stúdentafulltrúa í úttekt á Landbúnaðarháskóla íslands sem fer fram 31. október til 4. nóvember 2022. Úttektin er á vegum Gæðaráðs íslenskra háskóla.
Í handbók gæðaráðs kemur fram að LÍS skuli tilnefna stúdenta frá aðildarfélögum sínum og einnig að tilnefndur fulltrúi geti ekki verið úr sömu stofnun og verið er að taka út (LBHÍ). Hér er fjallað nánar um skilyrði:
Fulltrúinn má ekki hafa náin tengsl við stofnunina í gegnum fjölskyldutengsl - að náinn fjölskyldumeðlimur stundi nám við stofnunina eða starfi við hana.
Ekki má vera meira en eitt ár frá útskrift stúdentafulltrúa
Stúdent skal hafa reynslu af íslensku háskólakerfi og hafa verið stúdent við íslenskan háskóla
Úttektarteymið skrifar undir yfirlýsingu til staðfestingar á því að engir hagsmunaárekstrar séu til staðar
Þessi talning er ekki tæmandi og lokaákvörðun um gjaldgengi umsóknar er tekin af gæðaráði
Fulltrúinn þarf að vera laus allan daginn, þá daga sem úttektin fer fram. Um er að ræða launaða stöðu en stúdentafulltrúinn fær greitt sömu þóknun og aðrir meðlimir úttektarteymisins. Stúdentafulltrúinn skal vera með góða munnlega og skriflega enskukunnáttu.
Óskað er eftir tilnefningum frá öllum aðildarfélögum LÍS, fyrir utan NLBHÍ í síðasta lagi 30. júní, með ferilskrá og kynningarbréfi viðkomandi aðila. Tilnefningar skulu berast á lis@studentar.is
Ef það eru einhverjar spurningar varðandi hlutverkið má beina þeim til Alexöndru, forseta LÍS á alexandra@studentar.is
Umsóknir berist á lis@studentar.is fyrir 30. júní
Seeking student representative for a review of the Agricultural University of Iceland
LÍS has received a request to nominate a student representative for a quality review of the Agricultural University of Iceland, which will take place 31st of october to 4th of November 2022.
The Quality Boards's handbook states that LÍS shall nominate students from its member associations and also that a nominated representative may not be from the same institution as is being reviewed. Here are more conditions:
The student representative must not have a close connection with the institution through family ties - that a close family member studies or works with the institution.
The student representative may not have graduated more than one year earlier
The student representative must have experience of the Icelandic university system and have been a student at an Icelandic university
The review team signs a statement confirming that there is no conflict of interest
This list of requirements is not exhaustive and the final decision on eligibility is made by the Quality Board.
The representative must be available all day, on the days of the audit. This is a paid position and the student representative is paid the same fee as other members of the review team. It is not possible to say at this time whether the review is carried out locally or electronically. The student representative must be fluent in spoken and written English.
We request nominations from all LÍS member associations, except NLBHÍ, no later than 30th of June, with a CV and cover letter from the applicant. Nominations should be sent to lis@studentar.is
Please contact Alexandra, LÍS’s president (alexandra@studentar.is) if you have any questions.
Applications are to be sent to lis@studentar.is by 30th of June
Ert þú næsti gæðastjóri Landssamtaka íslenskra stúdenta? Framlengdur framboðsfrestur í hlutverk gæðastjóra LÍS!
Landssamtök íslenskra stúdenta óska eftir framboði Gæðastjóra LÍS fyrir starfsárið 2022-2023. Framboðsfrestur er til og með 12. júní 2022. Kynningarbréf og ferilskrá sendist á kjorstjorn@studentar.is
Við hvetjum frambjóðendur til þess að kynna sér lög og verklag samtakanna vel, en nánari upplýsingar um hvert embætti má einmitt finna þar. Þú getur líka haft samband við sitjandi embættismenn, en tengiliða upplýsingar má finna hér.
Mikilvægar upplýsingar:
Starfsárið hefst í júlí 2022 og er til maí 2023.
Gæðastjóri er forseti gæðanefndar LÍS og situr jafnframt í Ráðgjafarnefnd Gæðaráðs íslenskra háskóla fyrir hönd stúdenta. Hlutverk gæðastjóra er að stuðla að þekkingu og áhuga stúdenta á gæðamálum og hafa umsjón með stúdentum í gæðaúttektum.
Vinnutungumál LÍS er íslenska.
Efni til birtingar er bæði á ensku og íslensku en fundargögn og aðrir viðburðir eru almennt á íslensku.
Kjörgengi hafa…
Öll sem stunda háskólanám á Íslandi og/eða eru meðlimir í aðildarfélagi LÍS. (getur til dæmis verið í námi erlendis en samt hluti af SÍNE!)
Frambjóðendur mega hafa lokið námi, ef það eru innan við tvö ár frá námslokum.
Frambjóðendur kynna sig fyrir aðildarfélögum LÍS og í framhaldi af því verður kosið í hlutverk framkvæmdastjórnar á fulltrúaráðsfundi samtakanna sem verður haldinn fljótlega í kjölfar framboðsfrests.
Nokkur orð frá Björgvini, gæðastjóra LÍS 2021-2022
,,Ég hef lært ótrúlega margt af því að vera Gæðastjóri LÍS á líðandi starfsári. Verkefnin eru krefjandi en á sama tíma ótrúlega skemmtileg og fjölbreytt.
Helstu verkefnin fela í sér beina tengingu við Gæðaráð í gegnum Ráðgjafanefnd Gæðaráðs og náið samstarf með þeim í að bæta gæði náms í háskólum á Íslandi.
Ég hef kynnst fullt af frábæru fólki af framlínu hagsmunabráttu stúdenta sem, ásamt LÍS, eru öll að berjast fyrir betri framtíð fyrir stúdenta.
Þetta er frábær vettvangur til að hafa áhrif og láta rödd þína heyrast svo ef þú hefur áhuga þá gæti ég ekki mælt nógu mikið með því að sækja um stöðu hjá LÍS.”
Nánar um framboð í framkvæmdastjórn LÍS 2022-2023 // More info on applications for LÍS Executive committee 2022-2023
// English below
Landssamtök íslenskra stúdenta óska eftir framboði í framkvæmdastjórn LÍS fyrir starfsárið 2022-2023. Framboðsfrestur er til og með 21. maí 2022.
Frambjóðendur kynna sig fyrir aðildarfélögum LÍS og í framhaldi af því verður kosið í hlutverk framkvæmdastjórnar á skiptafundi samtakanna sem verður haldinn laugardaginn 28. maí.
Hafir þú áhuga skaltu senda kynningarbréf og ferilskrá á kjorstjorn@studentar.is
Við hvetjum frambjóðendur til þess að kynna sér lög og verklag samtakanna vel, en nánari upplýsingar um hvert embætti má einmitt finna þar. Þú getur líka haft samband við sitjandi embættismenn, en tengiliða upplýsingar má finna hér.
Mikilvægar upplýsingar:
Starfsárið hefst í júní 2022 og er til maí 2023.
Vinnutungumál LÍS er íslenska.
Efni til birtingar er bæði á ensku og íslensku en fundargögn eru almennt á íslensku.
Kjörgengi hafa…
Öll sem stunda háskólanám á Íslandi og/eða eru meðlimir í aðildarfélagi LÍS. (getur til dæmis verið í námi erlendis en samt hluti af SÍNE!)
Frambjóðendur mega hafa lokið námi, ef það eru innan við tvö ár frá námslokum.
Það eru sex embætti í framkvæmdastjórn LÍS sem kosið verður um á skiptafundi 28. maí
Hér fyrir neðan kemur stutt samantekt um hvert embætti sem er laust til framboðs en það eru forseti, varaforseti, gæðastjóri, markaðsstjóri, jafnréttisfulltrúi og ritari.
Forseti
Forsvarsaðili samtakanna
Boðar og stýrir fundum
Hefur yfirsýn yfir öll verkefni
Leiðir stefnumótun
Varaforseti
Tengiliður við aðildarfélög
Forseti lagbreytingarnefndar
Staðgengill forseta
Ritari
Ritar og heldur utan um fundargerðir
Sér um birtingu efnis á vefsíðu samtakanna
Þýðir skjöl samtakanna í samstarfi við forseta
Markaðsstjóri
Forseti markaðsnefndar
Sér um samfélagsmiðla, kynningarefni og hlaðvarp
Skipuleggur auglýsingaherferðir um málefni stúdenta
Vinnur í sýnileika samtakanna
Jafnréttisfulltrúi
Forseti jafnréttisnefndar
Berst fyrir auknu aðgengi að námi og bættri stöðu stúdenta
Verkefnastjóri Student Refugees Iceland
Gæðastjóri
Forseti gæðanefndar
Situr í ráðgjafarnefnd gæðaráðs
Stuðlar að þekkingu og áhuga stúdenta á gæðamálum
// ENGLISH
Dear students,
LÍS is opening the call for candidates for next year’s Executive Committee. The application deadline is 21st of May, if you are interested, please send an introductory letter and CV to kjorstjorn@studentar.is
Candidates will be invitied to introduce themselves to the Board of Representatives. Elections will take place at the Hand-over meeting on Saturday 28th of march.
Important information:
The next operating year will begin in June 2022 and last until May 2023.
LÍS' working language is Icelandic.
Our published information is in Icelandic and English but meeting documents are generally in Icelandic.
Eligability to run…
Any university student in Iceland and/or member of an Icelandic student union (e.g. member of SÍNE, the union if Icelandic students abroad).
Candidates may have finished studying, as long as they have been a student within the last two years.
There are six positions available on the executive committee:
President
Official union representative
Convenes and chairs meetings
Oversees all activities
Leads policy work
Vice-President
Liaison with member unions
Chairs legislative committee
Stand in for president
Secretary
Writes and keeps track of meeting documents and notes
Oversees websites and publications
Incidental tasks and support
Marketing officer
Chairs marketing committee
Oversees social media, promotional material and podcast
Plans marketing campaigns on student issues
Maintains the unions' public visibility
Equal Rights Officer
Chairs the equal rights committee
Advocates for equal access to education and students' welfare
Project manager of Student Refugees Iceland
Quality Officer
Chairs the quality committee
Sits on the Quality Council
Supports knowledge of and interest in quality matters among students
Rafrænt NOM81
Föstudag 8. apríl hélt LÍS áttugusta og fyrsta Nordisk Ordförande Møte, eða NOM81 fundinn. NOM er samráðsfundur landssamtaka stúdenta á Norður- og Eystrasaltslöndum og getur rekið söguna sína til 1946, þar sem Norrænn stúdentafundur átti sér stað í Árósum. Árið 2006 fengu þrjú landssamtök stúdenta í Eystrasaltslöndum fulla aðild að NOM, og standa nú tólf landssamtök frá tíu löndum að NOM: Avalak (Grænland), DSF (Danmörk), EÜL (Eistland), ILI ILI (Grænland), LÍS (Ísland), LSA (Lettland), LSS (Litháen), MFS (Færeyjar), NSO (Noregur), SAMOK (Finland), SFS (Svíþjóð) og SYL (Finland).
Dagskrá fundarins var þétt og margt rætt, en t.a.m. voru lög NOM endurskoðuð. Þema fundarins var Stúdenta minnihlutahópar og fengu NOM kynningu frá Q-félagi hinsegin stúdenta. Rætt var um mikilvægi kynhlutlausa orðanotkun til að tryggja inngildingu allra kynja. LÍS ávarpaði að það væri löngu orðið tímabært að uppfæra reglugerðir Evrópusamband stúdenta (ESU) í samræmi við breytta tíma og að þau ættu að gera ráð fyrir fleiri kynjum en kynjatvíhyggjan gerir.
Fundurinn gekk vonum framar og þakkar LÍS öllum þeim sem komu að skipulagningu fundarins.
Með von um þetta verði síðasti rafræni fundur NOM í bili!