Opið fyrir umsóknir í markaðsnefnd LÍS 2019-2020 // Open for applications to LÍS's marketing committee 2019-2020
Landssamtök íslenskra stúdenta auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum í markaðsnefnd samtakanna. …
//
The National Union of Icelandic Students (LÍS) is looking for interested personnel for the Union’s marketing committee. …
------------ Scroll down for the English version ------------
HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á MARKAÐSMÁLUM? LANGAR ÞIG TIL AÐ HAFA ÁHRIF? ERT ÞÚ SNILLINGUR Í SAMFÉLAGSMIÐLUM? VILT ÞÚ STARFA MEÐ STÚDENTUM FRÁ ÖLLUM HÁSKÓLUM LANDSINS?
Landssamtök íslenskra stúdenta auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum í markaðsnefnd samtakanna. Í stuttu máli er hlutverk markaðsnefndar að koma LÍS á framfæri í samfélaginu öllu, þó sérstaklega háskólasamfélaginu. Nefndin er kjörin fyrir alla sem vilja spreyta sig í fréttaflutning, vera með umsjón yfir heimasíðu eða skapa markaðsefni fyrir sístækkandi samtök á borð við LÍS. Reynsla af markaðsstörfum er mikill kostur, einnig reynsla af grafík, margmiðlum og ritstörfum. Með þátttöku þinni í markaðsnefnd gefst þér tækifæri til þess að kynnast samtökunum vel og þá sér í lagi fólkinu sem tekur þátt í starfi LÍS.
Athugið að krafa er gerð um að umsækjandi sé í háskólanámi eða að ekki sé meira en ár liðið frá því að umsækjandi var háskólanemi.
Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Guðbjart Karl Reynisson, markaðsstjóra LÍS. Netfang: bjartur@studentar.is
HVERNIG SÆKI ÉG UM?
Opið er fyrir umsóknir frá 8. nóvember til og með 22. nóvember. Sótt er um hér. Í umsókn skal koma fram nafn og tölvupóstfang en í viðhengi skal setja ferilskrá og kynningarbréf. Laus sæti í nefndinni eru fjögur.
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
------------ English ------------
ARE YOU INTERESTED IN MARKETING? DO YOU WANT TO BE INFLUENTIAL? DO YOU HAVE GOOD KNOWLEDGE OF SOCIAL MEDIA? DO YOU WANT TO WORK WITH STUDENTS FROM ALL OVER THE COUNTRY?
The National Union of Icelandic Students (LÍS) is looking for interested personnel for the Union’s marketing committee. In short, the role of the Marketing committee is to be responsible for promoting LÍS in the community as a whole, and especially in the university community. The committee is ideal for anyone who wants to get involved in news coverage, managing a website or creating marketing material for a growing organization such as LÍS. Experience in marketing is a great advantage, as well as experience in graphics, media and writing. Your participation in the marketing committee gives you the opportunity to get to know the organization well and especially the people who participate in the Union´s work.
Note that the applicant should be a university student or has been a university student in the last year.
If you wish for further information you can contact Guðbjartur Karl Reynisson, the Marketing Officer. Email: bjartur@studentar.is
HOW DO I APPLY?
Applications are open from November 8th until November 22th. You can apply here. The application should include your name, email address and you are also required to put in your CV and a short introduction letter. There are four available seats in the committee.
We encourage individuals of all genders to apply.
Auglýst eftir framboðum í stöðu varaforseta LÍS
LÍS auglýsa í stöðu varaforseta fyrir starfsárið 2019-2020. Framboð skulu berast á kjorstjorn@studentar.is fyrir kl 23:59 þann 6. nóvember og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Kostur er að frambjóðandi hafi reynslu af hagsmunabaráttu stúdenta, félagsstarfi í háskóla eða sambærilegu starfi.
LÍS auglýsa í stöðu varaforseta fyrir starfsárið 2019-2020. Framboð skulu berast á kjorstjorn@studentar.is fyrir kl 23:59 þann 6. nóvember og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Kostur er að frambjóðandi hafi reynslu af hagsmunabaráttu stúdenta, félagsstarfi í háskóla eða sambærilegu starfi. Kjörgengi til varaforseta hafa stúdentar sem eru, eða hafa verið síðustu tvö árin, meðlimir í aðildarfélögum LÍS, fulltrúaráði, framkvæmdastjórn eða nefndum LÍS.
Yfirlit yfir helstu hlutverk varaforseta úr verklagi LÍS:
Sinnir forsæti í fjarveru forseta og þarf að vera meðvitaður um allt það sem er í gangi innan samtakanna.
Aðstoðar forseta við gerð fundardagskrár og önnur tilfallandi verkefni.
Ber ábyrgð á samskiptum LÍS við aðildarfélög og skal vera aðildarfélögum innan handar óski þau eftir aðstoð við hvers konar verkefni sem koma að uppbyggingu eða betrun þeirra.
Ber ábyrgð á samstarfi aðildarfélaga og LÍS þegar kemur að innra starfi samtakanna. Skal varaforseti miðla upplýsingum og sækja uppástungur til aðildarfélaga þegar kemur að breytingum á innra starfi samtakanna.
Við upphaf hvers starfsárs skal varaforseti kynna sig fyrir forsvarsmönnum hvers aðildarfélags og eiga samtal um samstarf og hvernig sé best að eiga í samskiptum við viðkomandi um málefni aðildarfélaga og LÍS.
Sér um lagabreytingar en ganga þarf úr skugga um það á hverju ári að lögin séu í samræmi við starf samtakanna. Varaforseti er forseti lagabreytingarnefndar.
Varaforseti verður að geta hafið störf sem fyrst. Fulltrúaráð LÍS ákvarðar starfs- og launakjör varaforseta en sóst er eftir einstaklingi sem getur sinnt 40-90% starfshlutfalli. Fyrirspurnir má senda á lis@studentar.is.
Sigrún Jónsdóttir kjörin nýr forseti LÍS
Sigrún Jónsdóttir var kjörin forseti LÍS fyrir starfsárið 2019 - 2020 á fulltrúaráðsfundi samtakanna þann 29. október. Sigrún hefur gegnt hlutverki varaforeta LÍS frá því í lok maí og á síðasta starfsári var hún ritari samtakanna.
Sigrún Jónsdóttir var kjörin forseti LÍS fyrir starfsárið 2019 - 2020 á fulltrúaráðsfundi samtakanna þann 29. október. Sigrún hefur gegnt hlutverki varaforseta LÍS frá því í lok maí og á síðasta starfsári var hún ritari samtakanna.
Sigrún er nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands og hefur síðastliðin ár tekið virkan þátt í hagsmunabaráttu stúdenta samhliða náminu.
Við óskum Sigrúnu til hamingju með kjörið og þökkum henni um leið fyrir vel unnin störf sem varaforseti.
Auglýst eftir framboðum í stöðu forseta LÍS
LÍS auglýsa í stöðu forseta fyrir starfsárið 2019-2020. Framboð skulu berast á kjorstjorn@studentar.is fyrir kl 23:59 þann 28. október og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Kostur er að frambjóðandi hafi reynslu af hagsmunabaráttu stúdenta, félagsstarfi í háskóla eða sambærilegu starfi.
LÍS auglýsa í stöðu forseta fyrir starfsárið 2019-2020. Framboð skulu berast á kjorstjorn@studentar.is fyrir kl 23:59 þann 28. október og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Kostur er að frambjóðandi hafi reynslu af hagsmunabaráttu stúdenta, félagsstarfi í háskóla eða sambærilegu starfi. Kjörgengi til forseta hafa stúdentar sem eru, eða hafa verið síðustu tvö árin, meðlimir í aðildarfélögum LÍS, fulltrúaráði, framkvæmdastjórn eða nefndum LÍS.
Yfirlit yfir helstu hlutverk forseta úr verklagi LÍS:
Forseti skal hafa yfirsýn yfir alla starfsemi samtakanna og þekkja þau mál sem liggja fyrir samtökunum hverju sinni.
Forseti skal boða framkvæmdastjórnar- og fulltrúaráðsfundi, leggja fram dagskrá og stýra fundum.
Forseti hefur umsjón með sameiginlegum gögnum samtakanna – að á þeim sé gott skipulag og að hægt ég að finna öll þau gögn er samtökin varða.
Forseti er yfir landsþingsnefnd.
Forseti skal koma fram fyrir hönd félagsins og vera málsvari þess á opinberum vettvangi.
Forseti skal hafa umsjón með yfirlýsingum í nafni samtakanna og skal hann leggja þær fyrir fulltrúaráð til samþykktar áður en þær eru gefnar út.
Forseti skal gæta jafnt að hagsmunum allra aðildarfélaga og gæta hlutleysis í hvívetna.
Forseti er talsmaður samtakanna og skal því vera í samskiptum við mennta- og menningarmálaráðuneyti og aðra hagaðila. Skal halda ræður og erindi á ráðstefnum og fundum sem varða stúdenta sé þess óskað.
Forseti skal vera ábyrgur fyrir miðlun upplýsinga til fulltrúa og varafulltrúa í fulltrúaráði um alla starfsemi LÍS og til aðildarfélaga.
Forseti verður að kynna sér allt útgefið efni samtakanna (stefnur, verklag, ársskýrslur, handbækur og svo framvegis).
Kosið verður í stöðu forseta á fulltrúaráðsfundi samtakanna 29. október og verður forseti að geta hafið störf sem fyrst. Fulltrúaráð LÍS ákvarðar starfs- og launakjör forseta en sóst er eftir einstakling sem getur sinnt 50-100% starfshlutfalli.
Fyrirspurnir má senda á lis@studentar.is.
Markaðsstjóri LÍS 2019 - 2020
Þann 26. september síðastliðinn var Guðbjartur Karl Reynisson kosinn markaðsstjóri LÍS starfsárið 2019 - 2020 af fulltrúaráði samtakanna. Guðbjartur er með MSc gráðu í markaðsfræði og er auk þess þaulreyndur greinahöfundur.
Þann 26. september síðastliðinn var Guðbjartur Karl Reynisson kosinn markaðsstjóri LÍS starfsárið 2019 - 2020 af fulltrúaráði samtakanna. Guðbjartur er með MSc gráðu í markaðsfræði og er auk þess þaulreyndur greinahöfundur.
Markaðsstjóri ber ábyrgð á því að vekja athygli á LÍS í samfélaginu og ber ábyrgð á miðlum samtakanna.
Við bjóðum Guðbjart velkominn til starfa.