Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

LOFTSLAGVERKFALLIÐ HLÝTUR JAFNRÉTTISVIÐURKENNINGU JAFNRÉTTISRÁÐS // CLIMATE STRIKE RECEIVES THE EQUALITY COUNCIL’S EQUALITY RECOGNITION IN

Mynd: Loftslagsverkfall

Mynd: Loftslagsverkfall

Miðvikudaginn 9. desember hlaut Loftslagsverkfallið jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs. Viðurkenningin er veitt fyrir mikilvæg og metnaðarfull störf í þágu jafnréttis. Loftslagsverkfallið hugar að loftslagsmálum og berst fyrir grænni framtíð. Samtökin hlutu þá sérstaka hvatningarviðurkenningu fyrir baráttu þeirra fyrir aðgerðum yfirvalda á sviði loftslagsmála hér á landi. Landssamtök íslenskra stúdenta eru ótrúlega stolt af því að geta unnið með Loftslagsverkfallinu og óskum við þeim innilega til hamingju með þennan flotta árangur. 

Í yfirlýsingu Loftslagsverkfallsins er meðal annars vitnað í rökstuðning Jafnréttisráðs fyrir viðurkenningunni, en þar kemur meðal annars fram: 

“Það er ekki auðvelt að leysa loftslagsvandann en krafa unga fólksins sem stendur að loftslagsverkfallinu er skýr. Það er nauðsynlegt að skipuleggja aðgerðir í loftslagsmálum með þeim hætti að fjölbreytileiki mannkyns fái að njóta sín og að jafnrétti sé haft að leiðarljósi. 

Með þessari viðurkenningu hvetjum við komandi kynslóð til að halda áfram að láta til sín taka á opinberum vettvangi til framtíðar. Öflug forysta ungs fólks í Loftslagsverkfallinu, þar sem stúlkur og ungar konur eru áberandi, gefur góð fyrirheit. Þetta unga fólk krefur okkur sem eldri erum um vönduð vinnubrögð á sama tíma og við fylltumst bjartsýni fyrir framtíðinni.” 

Við hlökkum til að fylgjast með og styðja það mikilvæga starf sem Loftslagsverkfallið vinnur.


-- English Below --

Mynd: Loftslagsverkfall

Mynd: Loftslagsverkfall

On Wednesday, December 9th, the Climate Strike received the Equality Council’s Equality Recognition. This recognition is given for important and ambitious work towards equality. The Climate Strike fights for climate action and aims to ensure a greener future. The organization received a special encouragement recognition for this exact reason - their fight for climate action in Iceland. The National Union of Icelandic Students is extremely proud to work alongside the Climate Strike and congratulate them on this incredible accomplishment. 

In the Climate Strike’s statement, they refer to the following argument given by the Equality Council for the recognition: 

“It is not easy to solve the climate problem, but the demands of the young people involved in the climate strike is clear. It is necessary to plan climate action in such a way that humanity’s diversity is enjoyed and equality is a guiding principle. 

With this recognition, we encourage the future generation to continue to be involved in the public arena. The strong leadership of young people in the Climate Strike, where girls and young women are prominent, is promising. These young people demand of us, as seniors, good work ethic at the same time as we are optimistic about the future.” 

We look forward to following and supporting the important work the Climate Strike is doing. 




Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

BM79 - Fulltrúar LÍS á Evrópuþingi stúdenta

Síðastliðinn októbermánuð sóttu fulltrúar LÍS aðalþing (e. Board Meeting) Evrópusambands Stúdenta (European Students’ Union - ESU) en þar fer almennt fram tvisvar á ári, að vori og aftur að hausti. Í ljósi aðstæðna var þingið haldið rafrænt en viðburðarhald var í höndum Landssamtaka Stúdenta í Ungverjalandi, HÖOK, ásamt stjórn ESU. Viðmót fundarins takmarkaði fjölda þátttakenda við tvo fulltrúa frá hverju aðildarfélagi en þess ber að nefna að LÍS senda að jafnaði þrjá fulltrúa á þing samtakanna. Í þetta skipti sóttu þingið alþjóðafulltrúi LÍS, Sylvía Lind Birkiland, og forseti samtakanna, Jóhanna Ásgeirsdóttir.

Síðastliðinn októbermánuð sóttu fulltrúar LÍS aðalþing (e. Board Meeting) Evrópusambands Stúdenta (European Students’ Union - ESU) en þar fer almennt fram tvisvar á ári, að vori og aftur að hausti. Í ljósi aðstæðna var þingið haldið rafrænt en viðburðarhald var í höndum  Landssamtaka Stúdenta í Ungverjalandi, HÖOK, ásamt stjórn ESU. Viðmót fundarins takmarkaði fjölda þátttakenda við tvo fulltrúa frá hverju aðildarfélagi en þess ber að nefna að LÍS senda að jafnaði þrjá fulltrúa á þing samtakanna. Í þetta skipti sóttu þingið alþjóðafulltrúi LÍS, Sylvía Lind Birkiland, og forseti samtakanna, Jóhanna Ásgeirsdóttir.

128699957_203268851357207_6101860118470532333_n.jpg

Fundaraðstaða Sylvíu, alþjóðafulltrúa LÍS

128686848_295950278401180_2290790863089794572_n.jpg

Fundaraðstaða Jóu, forseta LÍS

Þingið sjálft stóð yfir í þrjá daga en undanfari þeirra voru tveir dagar af málstofum og fyrirlestrum þar sem kafað var í ýmis viðfangsefni þingfundarins. Einnig fóru fram þá daga framboðsræður til nýrrar stjórnar ESU sem var í þetta skipti kosin til sex mánaða eða fram að næsta vorþingi, enda fara kosningar almennt fram að vori.

Auk kosningar nýrrar stjórnar voru tekin fyrir fjölda málefna á þingfundinum sjálfum. Valdar stefnur og skjöl samtakanna voru tekin til endurskoðanir ásamt því að ný skjöl voru innleidd: Sáttmáli um stefnu ESU í geðheilbrigðismálum stúdenta sem og yfirlýsing samtakanna um húsnæðis- og samgöngumálefni stúdenta sem fellur undir stefnu um félagslega vídd. LÍS fagnar tilkomu beggja skala en þó sérstaklega þess fyrrnefnda sem miðar að því að þrýsta á úrræði tengd geðheilbrigðismálum en LÍS hafa unnið hart að því að beita sér fyrir málefninu, meðal annars með herferðinni „Geðveikt álag“.

LÍS hefur undanfarin misseri átt í nánum samskiptum við MFS, Landsamtökum Færeyskra stúdenta, sem nú standa í umsóknarferli þar sem þau sækjast eftir að aðild að ESU. Kosið var um aðildarumsókn þeirra og samþykkti þingið að veita MFS svokallaða kandídatsaðild sem er aðild án kosningarétts. Í kjölfarið mun teymi fulltrúa frá ESU heimsækja samtökin og kynna sér þeirra starfsemi en niðurstöður teymisins verða bornar upp við þingið að ári liðnu sem svo kýs hvort veita skuli MFS fulla aðild.

Þess ber að nefna að alþjóðafulltrúi LÍS mun eiga sæti í heimsóknarteymi ásamt fulltrúum frá landssamtökum stúdenta í Ungverjalandi og Þýskalandi en val fulltrúa fór fram á þinginu í kjölfar aðildarkosningarinnar. LÍS óskar MFS innilega til hamingju með árangurinn sem er afrakstur áralangs undirbúnings og hafa fulltrúar LÍS tröllatrú á nágrönnum okkar en ekki er óralangt síðan LÍS stóðu í svipuðum sporum. Samtökin fengu kandídatsaðild árið 2015 og urðu fullgildur meðlimur ári seinna en þau tóku þar með við keflinu af Stúdentaráði Háskóla Íslands sem þar til hafði átt sæti í stjórn ESU fyrir hönd íslenskra stúdenta.

Á þingum samtakanna tíðkast gjarnan að aðildarfélög kalli eftir stuðningi annarra meðlima við málefni sem varðar aðstæður í þeirra heimalandi en um er að ræða málefni sem snerta stúdenta að einhverju leiti, beint eða óbeint. Að þessu sinni var kallað eftir stuðningi þingsins varðandi tvö málefni en bæði snerta þau á réttindum almennra borgara og þar með stúdenta. Þingið samþykkti einróma samstöðu með stúdentum í Belarus en þess ber að nefna að LÍS sendi frá sér yfirlýsingu þess strax í kjölfarið og ásamt því að falast eftir stuðningi Mennta- og menningarmálaráðherra við sameiginlega yfirlýsingu ráðherra Evrópska háskólasvæðisins (e. EHEA) þessa efnis. Einnig sýndu meðlimir ESU samstöðu með mótmælendum í póllandi vegna frumvarps á Pólska þinginu sem miðar að því að þrengja til munar lög um þungunarrof þar í landi.

LÍS ásamt öðrum meðlimum ESU sýndu samstöðu með mótmælendum í Póllandi

LÍS ásamt öðrum meðlimum ESU sýndu samstöðu með mótmælendum í Póllandi


Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

Evrópska háskólasvæðið fyrir 2030: Aðgengilegt, nýstárlegt og samtengt / EHEA by 2030: Inclusive, innovative and interconnected

Forseti LÍS tók þátt í sendinefnd Íslands á ráðstefnunni í ár sem fulltrúi stúdenta. Það er mjög mikilvægt að allir hagaðilar háskólanna, sér í lagi stúdentar, þekki til og komi að vinnu EHEA og BFUG. Á ráðherrafundum EHEA koma sama æðstu embættismenn hvers lands í menntamálum, þau skuldbinda sig til þess að framfylgja ákveðnum gildum og vinna að úrbótum og skulu styðja hvort annað í innleiðingu aðgerða sem auka gæði, aðgengi og gagnsæi æðri menntunar.

//

The President of LÍS participated in the Icelandic delegation at this year's conference as a student representative. It is very important that all university stakeholders, especially students, are familiar with and involved in the work of EHEA and BFUG. At the EHEA Ministerial Conference, senior officials of each country in education commit to enforcing certain values ​​and working towards improvements, while also supporting each other in the implementation of measures that increase the quality, accessibility and transparency of higher education.

—English below—

Skj%C3%A1mynd+2020-11-23+141306.jpg

Þann 19. nóvember var haldinn rafrænn ráðherrafundur Evrópska háskólasvæðisins (e. European Higher Education Area, EHEA). Viðburðurinn á sér stað á tveggja ára fresti og þar koma menntamálaráðherrar 48 landa saman til þess að setja sér sameiginleg markmið um æðri menntun og meta árangur frá síðasta fundi. Þessi sameiginlegu markmið heita öðru nafni Bologna ferlið, „The Bologna Process”, því fyrsti samningurinn um samræmingu háskóla í Evrópu var gerður í Bologna árið 1999. 

Bologna ferlið hefur með beinum hætti mótað háskóla í allri Evrópu. Þaðan koma ECTS einingar, skipting gráða í grunnnám og framhaldsnám og það að háskólagráður frá einu aðildarríki séu teknar gildar í öllum hinum ríkjum svæðisins. Utanumhald um Bologna ferlið hefur „The Bologna Follow-Up Group, BFUG”, þar sem aðildarlönd EHEA skiptast á að leiða vinnuna. Að þessu sinni voru það Þýskaland og Bretland en Ísland sinnti sem dæmi formennsku, ásamt Lettlandi, árið 2015.

Forseti LÍS tók þátt í sendinefnd Íslands á ráðstefnunni í ár sem fulltrúi stúdenta. Það er mjög mikilvægt að allir hagaðilar háskólanna, sér í lagi stúdentar, þekki til og komi að vinnu EHEA og BFUG. Á ráðherrafundum EHEA koma sama æðstu embættismenn hvers lands í menntamálum, þau skuldbinda sig til þess að framfylgja ákveðnum gildum og vinna að úrbótum og skulu styðja hvort annað í innleiðingu aðgerða sem auka gæði, aðgengi og gagnsæi æðri menntunar.

Afurð hverrar ráðstefnu er yfirlýsing sem skilgreinir áherslur næstu ára. Þetta árið voru þrjú einkunnarorð í forgrunni sem síðan verða sett skýrari markmið í kringum:

  • Aðgengi 

  • Nýsköpun

  • Samstarf

„Til að ná fram framtíðarsýn okkar skuldbindum við okkur til að byggja upp aðgengilegt, nýstárlegt og samtengt EHEA árið 2030 sem verður fært um að styrkja sjálfbæra, samheldna og friðsæla Evrópu.”

Yfirlýsingin nefnir einnig að háskólamenntun verði lykilaðili að því að uppfylla Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030.

Yfirlýsingunni fylgja þrír viðaukar sem útlista markmið á nokkrum mikilvægum sviðum ásamt leiðbeiningum um hvernig megi ná þeim markmiðum. Viðaukarnir eru eftirfarandi: 

Þessar leiðbeiningar munu nýtast hagaðilum (ríkistjórnum, háskólum og stúdentum) í eflingu æðri menntunar en viðauki I um akademískt frelsi þykir sérstaklega mikilvægur í því samhengi að eitt aðildarríki EHEA hefur undanfarnar vikur og mánuði þverbrotið þau viðmið sem þar koma fram. Stór hluti ráðstefnunnar fór í að ræða þau mannréttindabrot sem eiga sér stað um þessar mundir í Hvíta-Rússlandi þar sem stúdentar og háskólastarfsfólk hafa þurft að þola ólögmæta beitingu ofbeldis, hefur verið handtekið eða neyðst til að flýja land fyrir það að mótmæla ólögmætu endurkjöri forsetans Alexander Lukashenko. Mjög margir ráðherrar nýttu þær tvær mínútur sem hver og einn fær til að tjá sig til þess að tala fyrir mannréttindum og gegn ógnarstjórn Hvíta-Rússlands. LÍS hefur verið í samskiptum við Evrópusamtök Stúdenta (e. European Students’ Union, ESU) landssamtök stúdenta í Hvíta-Rússlandi (BSA og BOSS) vegna stöðunnar. LÍS hefur deilt yfirlýsingu þar sem kröfur BSA og BOSS koma fram: að háskólar og yfirvöld taki afstöðu gegn takmörkunum á akademísku frelsi og gangi til aðgerða. Það er mikilvægt skref að stór hluti aðildarríkja EHEA fordæmi framgang yfirvalda í Hvíta-Rússlandi og er það von okkar að þrýstingurinn beri árangur.

Fram að næsta ráðherrafundi EHEA, sem verður í Albaníu árið 2022, mun mikil vinna eiga sér stað. Skipað verður í nefndir til þess að fylgja áætlunum eftir en ánægjulegt er að segja frá því að BFUG tryggir að fulltrúar stúdenta eigi sæti við borðið í nefndum. Það á eftir að koma í ljós hvort LÍS muni taka þátt í vinnu BFUG með beinum hætti en samtökin munu í öllu falli halda á lofti þeim gildum og markmiðum sem EHEA hefur samþykkt.

//

EHEA by 2030: Inclusive, innovative and interconnected

The European Higher Education Area (EHEA) held their biennial Ministerial Conference online on 19 November. There, ministers of education from 48 countries meet to set common goals for higher education and evaluate the results from the last meeting. These common goals are also known as the Bologna Process, as the first agreement on the harmonization of higher education in Europe was signed in Bologna in 1999.

The Bologna Process has directly shaped higher education across Europe. It has resulted in ECTS credits, the division of degrees into undergraduate and graduate studies and the fact that university degrees from one member state are accepted as valid in all the other states in the region. The Bologna process is managed by "The Bologna Follow-Up Group, BFUG", where EHEA member countries take turns leading the work. This time it was Germany and the United Kingdom, but Iceland served as the chair, along with Latvia, in 2015.

The President of LÍS participated in the Icelandic delegation at this year's conference as a student representative. It is very important that all university stakeholders, especially students, are familiar with and involved in the work of EHEA and BFUG. At the EHEA Ministerial Conference, senior officials of each country in education commit to enforcing certain values ​​and working towards improvements, while also supporting each other in the implementation of measures that increase the quality, accessibility and transparency of higher education.

The product of each conference is a statement, or communiqué, that defines the focus of the coming years. This year there were three key phrases which will serve as the basis for upcoming goals:

  • Inclusive

  • Innovative

  • Interconnected

"To achieve our vision, we commit to building an inclusive, innovative and interconnected EHEA by 2030, able to underpin a sustainable, cohesive and peaceful Europe."

The declaration also mentions that higher education will be a key player in meeting the UN Sustainable Development Goals for 2030.

The statement is accompanied by three annexes which outline goals in several important areas, as well as guidelines on how to achieve those goals. The appendices are as follows:

These guidelines will be useful to stakeholders (governments, universities and students) in enhancing higher education, but Annex I on academic freedom is considered particularly important in the context that one EHEA member has in recent weeks and months violated the criteria set out therein. A large part of the conference focused on the human rights violations that are currently taking place in Belarus, where students and university staff have had to endure the illegal use of force, have been arrested or forced to flee the country for protesting of Alexander Lukashenko’s illegitimate re-election. Many of the ministers took advantage of the two minutes each had to speak out in favor of human rights and against Belarus' current regime. LÍS has been in contact with the European Students' Union (ESU), and National Unions ofSstudents in Belarus (BSA and BOSS), regarding the situation. LÍS has shared a statement stating the demands of BSA and BOSS: that universities and authorities take a stand against restrictions on academic freedom and take action. It is an important step that a large part of the EHEA member states condemn authorities in Belarus, and it is our hope that the pressure will be effective.

Until the next EHEA Ministerial Confernce, which will take place in Albania in 2022, a great deal of work will take place. Committees will be appointed to follow up on the work to be done, and we are pleased to report that BFUG ensures that student representatives have a seat at the table in committees. It remains to be seen whether LÍS will participate directly in BFUG's work, but in any case the organization will uphold the values ​​and goals agreed on by the EHEA.

Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

LÍS óskar stúdentum og velvildarfólki þeirra til hamingju með dag íslenskrar tungu! // LÍS wishes students and their well-wishers a happy Icelandic Language Day!

Við viljum nýta tækifærið til að minna á fjölbreytileikann og mikilvægi þess að öll fái að njóta sín, hvert sem samband þeirra við íslenska tungu er.

//

We want to take this opportunity to remind people of diversity and the importance of everyone having the ability to thrive, regardless of their relationship with the Icelandic language.

Íslensk tunga.png

—English below—

Við viljum nýta tækifærið til að minna á fjölbreytileikann og mikilvægi þess að öll fái að njóta sín, hvert sem samband þeirra við íslenska tungu er.

  1. Það sést ekki utan á fólki hvort það talar íslensku. Það má spyrja hvaða tungumál fólk vill tala en ávallt skal gera það af virðingu og nærgætni! Það getur verið þreytandi fyrir einstakling sem talar íslensku að vera ítrekað ávarpað á ensku, eða fyrir einstakling sem er að læra íslensku að lenda alltaf í því að skipt sé yfir á ensku í miðju samtali sem byrjaði á íslensku. Þó þú haldir að það sé af tillitsemi, þá er það líklega vegna þess að þú ákvaðst út frá útliti/nafni/aðstæðum að einstaklingur tali ekki íslensku, sem eru einfaldlega fordómar sem hver og einn þarf að horfast í augu við hjá sér og reyna að breyta.

  2. Við eigum öll ólík sambönd við tungumál. Það getur tekið fólk tvö ár eða tvo áratugi að læra nýtt tungumál, og í raun er aldrei neinn “búinn” að læra tungumál. Gefum fólki þann tíma og stuðning sem það þarf til þess að læra íslensku, á sínum forsendum og af áhuga, og pössum að fólk fái samt að vera jafngildur hluti samfélagsins þangað til það er tilbúið til þess að tala íslensku, ef það vill. 

  3. Það er hægt að fagna, efla og auðga íslenska tungu, samhliða því að önnur tungumál séu töluð á Íslandi. Ef fólk kýs að tala saman á öðru tungumáli en íslensku, eða biður þig um að tala ensku við það frekar en íslensku, þá er það líka bara frábært! Við verðum öll fróðari af því að kynnast fleiri tungumálum, fólk sem talar íslensku sem móðurmál tapar ekki íslensku sinni á því að tala stundum ensku, heldur græðir þekkingu á ensku í viðbót.

//

LÍS wishes students and their well-wishers a happy Icelandic Language Day!

We want to take this opportunity to remind people of diversity and the importance of everyone having the ability to thrive, regardless of their relationship with the Icelandic language.

1. You can’t tell if a person can speak Icelandic just by looking at them. You can ask what language people prefer to speak, but always do so with respect and prudence! It can be exhausting for an individual who speaks Icelandic to be repeatedly addressed in English, or for an individual who is learning Icelandic when the other person always switches to English in the middle of a conversation that began in Icelandic. Even though you think it's out of consideration, it's probably because you decided based on their appearance/name/situation that an individual does not speak Icelandic, which are simply prejudices that each person has to face in themselves and try to change.

2. We all have different relationships with languages. It can take people two years or two decades to learn a new language, and in fact no one is ever “finished” learning a language. We must give people the time and support they need to learn Icelandic, on their own terms and based on their interest, and make sure that people are still allowed to be an equal part of society until they are ready to speak Icelandic, if they want to.

3. It is possible to celebrate, strengthen and enrich the Icelandic language, at the same time as other languages ​​are spoken in Iceland. If people choose to speak together in a language other than Icelandic, or ask you to speak English with them rather than Icelandic, then that's just great too! We all become more knowledgeable by getting to know more languages, people who speak Icelandic as their mother tongue do not lose their Icelandic by sometimes speaking English, but gain additional knowledge of English.



Read More
Landssamtök íslenskra stúdenta Landssamtök íslenskra stúdenta

LÍS kallar eftir frekari umbótum fyrir nemendur með sérþarfir á háskólastigi // LÍS calls for further reforms for students with special needs at the university level

Þann 11. nóvember 2020 var haldin kynningarfundur og vígsla vefsíðu Rettinda-Ronju, sem er verkefni á vegum LÍS og Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ). Tilgangur vefsíðunnar er að auka aðgengi nemenda með sérþarfir að upplýsingum um réttindi sín í háskólum á Íslandi.

//

On 11 November 2020, an introductory meeting and inauguration was held for the new Rettinda-Ronja website, a project run jointly by LÍS and ÖBÍ - The Icelandic Disability Alliance. The purpose of the website is to provide information for students with special needs about their rights in universities in Iceland. The website is currently only in Icelandic but will soon be available in other languages as well.

—ENGLISH BELOW—

Þrjú þeirra sem standa að baki verkefninu héldu kynningar á rafræna viðburðinum.Frá vinstri til hægri: Sigvaldi Sigurðarson starfar sem verkefnastjóri SÍF og er fyrrum verkefnastjóri Réttinda-Ronju. Ágústa Björg Kettler Kristjánsdóttir starfar sem v…

Þrjú þeirra sem standa að baki verkefninu héldu kynningar á rafræna viðburðinum.

Frá vinstri til hægri: Sigvaldi Sigurðarson starfar sem verkefnastjóri SÍF og er fyrrum verkefnastjóri Réttinda-Ronju. Ágústa Björg Kettler Kristjánsdóttir starfar sem verkefnastýra hjá Réttinda-Ronju. Anna Kristín Jensdóttir starfar sem varaforseti LÍS og móttökustjóri réttindagæslu fatlaðs fólks. Einnig er hún menntuð sem náms- og starfsráðgjafi.


Þann 11. nóvember 2020 var haldin kynningarfundur og vígsla vefsíðu Rettinda-Ronju, sem er verkefni á vegum LÍS og Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ). Tilgangur vefsíðunnar er að auka aðgengi nemenda með sérþarfir að upplýsingum um réttindi sín í háskólum á Íslandi.

Í beinni útsendingu á facebook kynntu upphafs- og umsjónarmenn verkefnisins sögu, tilgang, virkni og mikilvægi Réttinda-Ronju, en kynningin er enn aðgengileg fyrir áhugasama.

LÍS eru ótrúlega stolt af framlagi þeirra einstaklinga sem standa að verkefninu og óskum þeim innilega til hamingju með árangur margra ára vinnu. Tilkoma vefsíðunnar er stórt skref í átt að því að auka tækifæri fólks með fötlun til þess að stunda það nám sem þau kjósa.

Niðurstöður könnunar sem gerð var í upphafi verkefnisins sýna að einhver úrræði til stuðnings við þennan nemendahóp eru til staðar, en skortur er á upplýsingum um þau úrræði. Í þeirri vinnu sem nú hefur átt sér stað í þróun vefsins hefur komið í ljós að víða er hægt að gera betur í þjónustu við fólk með fötlun í háskólum landsins. Það er von okkar að vefsíðan muni nýtast sem þrýstiafl í að auka þjónustuna við þessa nemendur.

Í ljósi þess að Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur verið fullgildur hér á landi er hér um framfaraskref að ræða. Í 24. grein samningsins er fjallað um menntun. Þar er meðal annars kveðið á um að fólk með fötlun eigi jafnan rétt til náms og ófatlaðir einstaklingar. 

Til þess að fylgja samningum eftir á borði en ekki aðeins í orði þá kalla LÍS eftir eftirfarandi aðgerðum:

  1. Að þeir aðilar sem koma að því að þjónusta nemendur með fatlanir eða námsörðuleika stuðli að samvinnu fagaðila til að auðvelda nemandanum að fá þann stuðning sem hann þarfnast. Það gæti falist í að fagmenn hittist reglulega saman með nemandanum og skapaður þannig sameiginlegan vettvang til samráðs. 

  2. Að þau úrræði sem standa þessum nemendum til boða séu sýnileg öðrum fagstéttum eins og náms- og starfsráðgjöfum og félagsráðgjöfum.

  3. Að háskólar taki til athugunar þau atriði sem fá rauðan þumal á vefsíðunni, þ.e. bæti við þjónustu sem ætti að vera til staðar en er það ekki. (Svo má endilega láta Réttinda-Ronju vita um framfarir svo hægt sé að uppfæra vefsíðuna!)

  4. Að háskólar tryggi að um raunverulegt aðgengi sé að ræða, ekki aðeins fyrir fólk sem notar hjólastól, sem á að sjálfsögðu alltaf að tryggja, en að sé hugað að þörfum enn fjölbreyttari hóps stúdenta, eins og blindra og sjónskertra, heyrnalausra og heyrnaskertra, fólks á einhverfurófinu og með þroskaskerðingar auk nemenda með námserfiðleika að öðru tagi. 

  5. Að stjórnvöld tryggi nægilegt fjármagn og skapi hvata til þess að háskólar veiti nemendum með fötlun þá þjónustu sem þau þurfa á að halda til að geta stundað nám sitt óháð staðsetningu skóla eða tegund náms 

LÍS calls for further reforms for students with special needs at the university level

Three of the people behind the project gave presentations at the electronic event.From left to right: Sigvaldi Sigurðarson works as SIF's project manager and is the former project manager of Réttindi-Ronja. Ágústa Björg Kettler Kristjánsdóttir works…

Three of the people behind the project gave presentations at the electronic event.

From left to right: Sigvaldi Sigurðarson works as SIF's project manager and is the former project manager of Réttindi-Ronja. Ágústa Björg Kettler Kristjánsdóttir works as a project manager at Réttinda-Ronja. Anna Kristín Jensdóttir works as the vice president of LÍS and the reception manager for the protection of the rights of disabled people. She is also trained as a study and career counselor.


On 11 November 2020, an introductory meeting and inauguration was held for the new Rettinda-Ronja website, a project run jointly by LÍS and ÖBÍ - The Icelandic Disability Alliance. The purpose of the website is to provide information for students with special needs about their rights in universities in Iceland. The website is currently only in Icelandic but will soon be available in other languages as well.

Broadcasted live on Facebook, the founders and supervisors of the project presented the history, purpose, function and importance of Réttindi-Ronja, and the presentation is still accessible for anyone interested.

LÍS is incredibly proud of the contribution of the individuals involved in the project and we sincerely congratulate them on this success of many years’ of work. The advent of the website is a major step towards increasing opportunities for people with disabilities to pursue the education they choose.

The results of a survey conducted at the beginning of the project show that there are some resources to support this group of students available, but there is a lack of information about those resources. In the work that has now taken place in the development of the website, it has become clear that in many ways Iceland’s universities can do better in services for people with disabilities. It is our hope that the website will be used as a driving force in increasing the services for these students.

In light of the fact that the United Nations Convention on the Rights of Persons with Disabilities has been ratified in Iceland, some progress is being made. Article 24 of the Convention deals with education. Among other things, it stipulates that people with disabilities have the same right to education as non-disabled individuals.

In order to fully comply with the convention, LÍS calls for the following actions to increase support for students with disabilities:

  1. Increase cooperation between the various experts responsible for supporting students with disabilities. This could involve professionals meeting regularly with the student, thus creating a common forum for consultation.

  2. That the resources available to these students are visible to other professions such as study and career counselors and social workers.

  3. That universities take into account the issues that get a red thumbs-down on the website, ie. add services that should be available but are not. (Then please let Réttinda-Ronja know about the progress so we can update the website!)

  4. That universities ensure that there is real access, not only for people who use wheelchairs, which of course should always be ensured, but that the needs of an even more diverse group of students be taken into account, such as the blind and visually impaired, the deaf and hard of hearing, people on autism spectrum and with developmental disabilities as well as students with other learning difficulties.

  5. The government must ensure sufficient funding and create incentives for universities to provide students with disabilities with the services they need to be able to pursue their studies, regardless of the location of the school or type of study.

Read More